Eldvarnareftirlitsmaður / varaslökkviliðsstjóri

janúar 7, 2020
Featured image for “Eldvarnareftirlitsmaður / varaslökkviliðsstjóri”

Sveitarfélagið Borgarbyggð óskar eftir að ráða eldvarnareftirlitsmann / varaslökkviliðsstjóra í 100 % starf.

Starfið felst í lögboðnu eldvarnareftirliti og eftirliti með framkvæmd laga og reglna um brunavarnir.

Starfið felst einnig í stjórnun, útköllum og öðrum almennum störfum slökkviliðsins í samstarfi við slökkviliðsstjóra. Jafnframt daglegri ábyrgð á rekstri Slökkviliðs Borgarbyggðar í fjarveru slökkviliðstjóra og bakvaktarskyldu í samvinnu við hann.

Starfssvið:

  • Almennt eldvarnareftirlit 
  • Úttektir og leyfisveitingar
  • Staðgengill slökkviliðsstjóra í fjarveru hans
  • Almenn störf slökkviliðs í samráði við slökkviliðsstjóra

Hæfniskröfur:

  • Löggiltur slökkviliðsmaður með lágmarks 1 árs starfsreynslu í slökkviliði
  • Þekking og þjálfun í brunamálum og á sviði brunavarna
  • Menntun skv. ákvæðum reglugerðar um eldvarnir og eldvarnareftirlit nr. 723/2017.
  • Skipulagshæfni og fagmennska
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og góðir samskiptahæfileikar

Nánari upplýsingar og umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi skulu sendar á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is .

Nánari upplýsingar um starfið veita Bjarni K. Þorsteinsson slökkviliðsstjóri bjarnikr@borgarbyggd.is í síma 437-2222 og Ragnar F. Kristjánsson sviðsstjóri Umhverfis- og skipulagssviðs ragnar@borgarbyggd.is í síma 433-7100.

Umsóknarfrestur er til 26. janúar nk.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

 


Share: