Auglýsing um deiliskipulagsbreytingu á Hvanneyri í Borgarbyggð

nóvember 27, 2007

Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi á Hvanneyri svæði B í Borgarbyggð.

Í samræmi við 26. grein skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 hefur sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsbreitingar:
Um er að ræða breytingu á gildandi deiliskipulagi. Breytingin felst í því að við götuna Þrastarflöt er lóðum fyrir raðhús breitt í fjórar lóðir fyrir einbýlishús og að auki er bætt við fjórum einbýlishúsalóðum norðan við Þrastarflötina.
 
Tillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14 Borgarnesi frá 26. nóvember til 24. desember og frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum rennur út 7. janúar 2008.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og bygginganefndar í Ráðhús Borgarbyggðar Borgarbraut 14 311 Borgarnes.
Hver sá sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast henni samþykkir.
 
Mynd með frétt sýnir Hvannarlaufblað (Björg Gunnarsdóttir)

Share: