Áskorun til kattaeigenda

júní 16, 2020
Featured image for “Áskorun til kattaeigenda”

Um þessar mundir eru ungar að klekjast úr eggjum hinna ýmsu fuglategunda. Fuglavinum svíður því sárt að sjá heimilisketti éta ófleyga unga og er því enn minnt á ábyrgð kattaeigenda og þess vænst að þeir taki þeim tilmælum sem birtast í samþykkt um hunda- og kattahald í Borgarbyggð og einnig í stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Friðlandið í Andakíl.

Eigendum og forráðamönnum katta ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma og eftir atvikum takmarka útiveru katta, meðal annars að næturlagi. Í samþykkt sveitarfélagsins og í Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Friðlandið í Andakíl, sem er friðlýst sem búsvæði fugla er bent á að lausaganga katta er ekki æskileg og eru kattaeigendur hvattir til að halda köttum sínum innan dyra frá 20. apríl til. 20. júlí.

Allir hundar og kettir í þéttbýli skulu skráðir hjá sveitarfélaginu og samkvæmt lögum um velferð dýra nr. 55/2013 er skylt að einstaklingsmerkja  dýrin og skrá í miðlægan gagnagrunn, www.dyraaudkenni.is  

Ómerkt dýr teljast hálfvillt dýr í skilningi laganna og telst sveitarfélag umráðamaður þess, að tveimur sólarhringum liðnum, sé það handsamað. Því eru kattaeigendur hvattir til einstaklingsmerkja dýr sín og sækja um leyfi til kattahalds á Þjónustugátt á heimasíðu Borgarbyggðar.  Kattaeigendur geta vænst þess að farið verði í sérstakt átak í skráningum á gæludýrum fljótlega.

 

 


Share: