Allir lesa

febrúar 9, 2017
Featured image for “Allir lesa”

Landsleikurinn ALLIR LESA er nú í fullum gangi og hafa þátttakendur lesið samtals 850 daga á þeim 14 dögum sem liðnir eru af keppninni. Sveitarfélögin keppast við að hvetja bæjarbúa áfram og víða keppa sjálfir bæjarstjórarnir til sigurs, enda heiður sveitarfélagsins í húfi!

Borgarbyggð er þessa stundina í 18. sæti, fimm sætum ofar en nágrannarnir í Reykjavík, og hafa lestrarhestar bæjarins lesið að meðaltali í 8,5 klukkustundir frá upphafi landsleiksins. Þetta verður að teljast frábær árangur en til halda dampi er tilvalið að taka þátt í stórskemmtilegu bókabingói sem aðstaðandendur Allir lesa hafa sett saman.

Hægt er að skrá sig til leiks fram á síðasta dag landsleiksins, sem er þann 19. febrúar. Skráning fer fram á allirlesa.is auk þess sem hægt er að fylgjast með fréttum og skemmtilegu efni á facebook-síðu leiksins. Aðstandendur Allir lesa eru Reykjavík, bókmenntaborg Unesco og Miðstöð íslenskra bókmennta með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Heimili og skóla.


Share: