Aðstoðarmatráður í mötuneyti Grunnskóla Borgarfjarðar

nóvember 5, 2015
Vegna forfalla (fæðingarorlofs) vantar aðstoðarmatráð að Kleppjárnsreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar.
Starfshlutfall er 100% og þarf umsækjandi að geta hafið störf um miðjan nóvember.
Laun skv. kjarasamningi Kjalar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Upplýsingar veitir Ingibjörg Adda Konráðsdóttir skólastjóri í síma 8401520.
Umsóknum skal skila á netfangið ingibjorg.adda.konradsdottir@gbf.is.
 

Share: