Uppfært: 17. júní – Dagskrá

júní 14, 2022
Featured image for “Uppfært: 17. júní – Dagskrá”

Hátíðarhöld á 17. júní í Borgarbyggð eru með hefðbundnu sniði í ár. Tímasetningar og staðsetningar geta breyst. Nýjustu upplýsingar verður að finna á heimasíðu Borgarbyggðar, borgarbyggd.is

Borgarnes














08:00

Fánar dregnir að húni
Borgarbyggð hvetur alla íbúa til að draga fána að húni í tilefni dagsins.

08:00-24:00

Teljum fána!
Íbúar eru hvattir til að skreyta hús og híbýli með íslenska fánanum og taka þátt í leiknum Teljum fána.

Þátttakendur reyna að koma auga á fána í gluggum, görðum, á girðingum eða annarsstaðar í bænum.

Tvö heppin fá þátttökuverðlaun.

Sendu inn fánatölu með nafni og símanúmeri á netfangið mannlif@borgarbyggd.is fyrir lok dags og vinningurinn gæti verið þinn.

10:00 – 11:00

Íþróttahátíð á Skallagrímsvelli
Íþróttaálfurinn verður með upphitun fyrir alls kyns þrautir og sprell fyrir einstaklinga á öllum aldri.

10:00 – 12:00

Kaffi og list hjá Michelle Bird
Michelle opnar vinnusvæðið sitt fyrir gesti og gangandi. Hægt að sjá sýnishorn af listasjölum í framleiðslu.

Boðið upp á kaffi og muffins.

Ókeypis aðgangur.

Heimilisfang: Sæunnargata 12

11:00

Guðsþjónusta í Borgarneskirkju
Séra Þorbjörn Hlynur Árnason messar.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur organista.

12:00 – 14:00

Safnahús Borgarfjarðar
Leiðsögn um sýninguna Hennar voru spor með Katrínu Jóhannesdóttur sýningarstjóra.

Ókeypis aðgangur í tilefni dagsins í boði sveitarfélagsins.

12:30

Andlitsmálning í Óðali
Hitað upp fyrir skrúðgöngu.

13:30

Skrúðganga
Gengið frá Borgarneskirkju í Hjálmaklett. Trommusláttur á vegum Tónlistarskóla Borgarfjarðar.

14:00

Hátíðar- og skemmtidagskrá í Hjálmakletti

  • Hátíðarræða, Guðveig Lind Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar
  • Ávarp fjallkonu
  • Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar
  • Benedikt Búálfur og Dídí mannabarn
  • Leikhópurinn Lotta

Elsa María Guðalaugs Drífudóttir verður kynnir.

Hoppukastalar og kaffisala kvenfélagsins verða á sínum stað.

16:00 – 18:00

Skemmtun á planinu hjá íþróttamiðstöðinni.
Björgunarsveitin Brák býður íbúum að spreyta sig í þrautum og öðru skemmtilegu.

16:00 – 18:00

Reiðhöllin Faxaborg
Hmf. Borgfirðingur teyma undir börnum.

 

Varmaland




09:00-18:00

Sundlaugin á Varmalandi
Ókeypis aðgangur í sundlaugina í tilefni dagsins.

 

Kleppjárnsreykir




09:00 – 18:00

Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum
Ókeypis aðgangur í sundlaugina í tilefni dagsins.

 

Hvanneyri




11:30

UMFÍ Íslendingur stendur fyrir hátíðarhöldum.
Lagt verður af stað frá Sverrisvelli út í skjólbeltin. Grill verður á staðnum þar sem hver grillar fyrir sig og sína. Leikir, skemmtun, gleði og gaman, allir velkomnir og vonast er til að sjá sem flesta.

 

Reykholtsdalur




11:00 & 13:00

Ungmennafélag Reykdæla stendur fyrir hátíðarhöldum.
Messureið: Lagt af stað kl. 10:00 frá Gróf, 10:00 frá Kópareykjum og 10:15 frá Hofsstöðum.

Messa kl. 11:00 í Reykholti.

Hangikjötsveisla í Logalandi kl. 13:00. Verð: 3.200 kr. – frítt fyrir leikskólabörn. Engin posi á staðnum.

Útihátíðardagskrá í Logalandi – Hátíðarræða, fjallkonan, karamelluflugvélin ef veður leyfir og leikir. Veittar verða viðurkenningar til barna sem stunda íþróttir.

 

Lundareykjadalur




14:00

Ungmennafélagið Dagrenning sér um hátíðardagskrá.
Kaffistund í Brautartungu, leikir og gleði. Grill og leikir á öðrum stað en í Brautartungu um kvöldið, auglýst síðar.

Hver og einn leggur eitthvað til á kökuhlaðborðið og grillið.

Lindartunga




14:00

Kvenfélagið Björk og Ungmennafélag Eldborg standa fyrir hátíðarhöldum.
Hefðbundin 17. júní útihátíðardagskrá í Lindartungu.

Börn eru á ábyrgð forráðamanna


Share: