Ragnhildur Kristín og Geir afhenda Indriða íþróttafulltrúa gjöfina. Á kynningu á samstarfi Íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi og Heilsulindarsamtaka Reykjavíkur og nágrennis í markaðsmálum sem haldin var í Óðali á dögunum kom Borgarfjarðardeild Rauða kross Íslands færandi hendi og afhenti forsvarsmönnum íþróttamiðstöðvarinnar að gjöf sérhæft súrefnisgjafatæki fyrir sundstaði. Við sama tækifæri fögnuðu menn því að enn einu sinni var nýtt met …
Framkvæmdir hafnar.
Nú er byrjað á framkvæmdum við að setja nýtt parket á gólfið í sal íþróttamiðstöðvarinnar. Verið er að taka gamla ónýta dúkinn af og sakna hans fáir. Reiknað er með að í byrjun næstu viku verði farið að leggja nýja efnið á gólfið. Íþróttakennsla og æfingar færast út í góða veðrið og hafa allir gott af því að fá ferskt …
Laus störf við Grunnskólann í Borgarnesi
Grunnskólinn í Borgarnesi auglýsir eftir myndmenntakennara í fullt starf fyrir næsta skólaár. Grunnskólinn í Borgarnesi Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með u.þ.b. 330 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn rekur metnaðarfullt skólastarf, þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, teymisvinnu kennara og vellíðan nemenda. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðum kennurum og lögð …
Útboð á skólaakstri
Grunnskólinn í Borgarnesi og Varmalandsskóli óska eftir tilboðum í skólaakstur með nemendur skólanna. Nánari upplýsingar eru í liðnum „tilkynningar“ hér vinstra megin á síðunni.
Kynningarfundur – Umhverfisstjórnun fyrirtækja – Umhverfisvitinn
Fimmtudaginn 15. apríl 2004, klukkan 20:30 verður haldinn á Hótel Borgarnesi kynningarfundur um umhverfisstjórnun fyrirtækja og Umhverfisvitann, sem er umhverfisvottunarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Borgarbyggð hefur ákveðið að gerast aðili að þessu kerfi og verður á fundinum kynnt hvað felst í þessu kerfi og hvernig því verður komið á í sveitarfélaginu. Einnig verður á fundinum kynnt umhverfisstarf í …
Laus störf við grunnskóla Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi og Varmalandsskóli auglýsa eftir kennurum fyrir skólaárið 2004-2005. Grunnskólinn í Borgarnesi Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með u.þ.b. 330 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn rekur metnaðarfullt skólastarf, þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, teymisvinnu kennara og vellíðan nemenda. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðum kennurum og lögð er …
Háskólaráð Borgarfjarðar stofnað
Neðri röð frá vinstri: Páll S Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggð, Runólfur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans, Linda B Pálsdóttir sveitarstjóri Borgarfjarðarsveit, Magnús B. Jónsson rektor Landbúnaðarháskólans og Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu. Efri röð frá vinstri: Stefán Kalmansson fjármálastjóri Viðskiptaháskólans og Torfi Jóhannesson rannsóknastjóri við Landbúnaðarháskólann. Í Borgarfjarðarhéraði eru starfandi tveir háskólar, Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Landbúnarháskólinn á Hvanneyri, og hefur starfsemi þeirra stöðugt …
Sundnámskeiði lokið !
Nýlokið er sundleikjanámskeiði fyrir börn fædd 1999 – 2000 og var námskeiðið á vegum Sunddeildar Skallagríms. 39 börn mættu á námskeiðið og stóðu sig öll vel enda eins gott að læra að synda svo hægt sé að fara í vatnsrennibrautirnar góðu. Reyndar hefur tíðin verið svo góð að brautirnar hafa oft verið opnar í vetur. Hafa þeir fjölmörgu ferðamenn …
Árshátíð Nemendafélags G.B. – aukasýningar !
Árshátíðarhópurinn Smelltu á myndina til að sjá hana stærri Nú standa yfir sýningar á Árshátíð Nemendafélags Grunnskóla Borgarness en unglingarnir taka fyrir leikverkið Gúmmí Tarzan að þessu sinni. Uppselt hefur verið á allar fjórar sýningarnar sem búnar eru og því hefur verið ákveðið að halda aukasýningar á þessari frábæru uppfærslu unglinganna í Óðali sem hér segir: Aukasýning mánudag 29. …
Skallagrímur Íslandsmeistari í 1. deild !
Frábær stemming var í íþróttahúsinu í Borgarnesi í gærkvöldi þegar ljóst var að Skallagrímsmenn voru orðnir Íslandsmeistarar í 1. deild karla í körfuknattleik.Áhorfendur troðfylltu bekkina og skemmtu sér hið besta.Sungu heimamenn “ Í Borgarnesi í Borgarnesi á heimavelli erum við”…þegar ljóst var að titillinn var í höfn. Leikurinn var hraður og skemmtilegur og baráttan til staðar allan leikinn. Skallagrímsmenn höfðu …