Nýlokið er sundleikjanámskeiði fyrir börn fædd 1999 – 2000 og var námskeiðið á vegum Sunddeildar Skallagríms. 39 börn mættu á námskeiðið og stóðu sig öll vel enda eins gott að læra að synda svo hægt sé að fara í vatnsrennibrautirnar góðu. Reyndar hefur tíðin verið svo góð að brautirnar hafa oft verið opnar í vetur. Hafa þeir fjölmörgu ferðamenn …
Árshátíð Nemendafélags G.B. – aukasýningar !
Árshátíðarhópurinn Smelltu á myndina til að sjá hana stærri Nú standa yfir sýningar á Árshátíð Nemendafélags Grunnskóla Borgarness en unglingarnir taka fyrir leikverkið Gúmmí Tarzan að þessu sinni. Uppselt hefur verið á allar fjórar sýningarnar sem búnar eru og því hefur verið ákveðið að halda aukasýningar á þessari frábæru uppfærslu unglinganna í Óðali sem hér segir: Aukasýning mánudag 29. …
Skallagrímur Íslandsmeistari í 1. deild !
Frábær stemming var í íþróttahúsinu í Borgarnesi í gærkvöldi þegar ljóst var að Skallagrímsmenn voru orðnir Íslandsmeistarar í 1. deild karla í körfuknattleik.Áhorfendur troðfylltu bekkina og skemmtu sér hið besta.Sungu heimamenn “ Í Borgarnesi í Borgarnesi á heimavelli erum við”…þegar ljóst var að titillinn var í höfn. Leikurinn var hraður og skemmtilegur og baráttan til staðar allan leikinn. Skallagrímsmenn höfðu …
Sumar- og afleysingastörf 2004
Laus eru til umsóknar sumar- og afleysingastörf hjá Borgarbyggð sumarið 2004. Afleysingar í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi.Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.Starfið er vaktavinna sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við sundlaugarmannvirki úti og inni, í íþróttahúsi auk þrifa, afgreiðslu o.fl.Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilnings á …
Bæjarstjórn Borgarbyggðar samþykkir framkvæmdaáætlun fyrir Staðardagskrá 21
Bæjarstjórn Borgarbyggðar samþykkt á síðasta fundi sínum framkvæmdaáætlun fyrir Staðardagskrá 21, en í henni eru sett fram metnaðarfull markmið um það hvernig megi stuðla að sjálfbærri þróun í sveitarfélaginu. Sjálfbær þróun snýst ekki bara um umhverfismál, hún snýst ekki síður um almenna velferð íbúanna. Bæjarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á árinu 2001 að hefja vinnu við Staðardagskrá 21 og var skipaður …
Gríðarlega stórt skref fyrir allar hafnirnar
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnarÍ gær var undirrituð, í bæjarþingsalnum á Akranesi, viljayfirlýsing fulltrúa tíu sveitarfélaga á suðvesturhorninu um sameiningu Grundartangahafnar, Reykjavíkurhafnar, Akraneshafnar og Borgarneshafnar. Stefnt er að sameiningu hafnanna í eitt fyrirtæki frá og með 1. janúar 2005 en skipaður verður starfshópur til að vinna að semeiningunni í samræmi við viljayfirlýsingu sveitarfélaganna. Eignarhlutar í sameinuðu fyrirtæki skiptast þannig á mili hafnanna …
Tónlistarskóli Borgarfjarðar í eigið húsnæði
Viðar Guðmundsson kennari og Ásta Þorsteinsdóttir nemandi.Nýtt húsnæði Tónlistarskóla Borgarfjarðar var formlega tekið í notkun síðastliðinn laugardag að viðstöddu fjölmenni. Þar með er skólinn kominn í igið húsnæði í fyrsta sinn frá stofnun hans fyrir 36 árum en kennsla hefur hingað til farið fram í grunnskólum héraðsins og í leiguhúsnæði á nokkrumstöðum í Borgarfirði eða á heimilum tónlistarkennara.Nýja Tónlistarskólahúsið er …
Íþrótta-, æskulýðs- og tómstundasjóður.
Hér með auglýsir Borgarbyggð eftir umsóknum vegna úthlutunar á peningalegum styrkjum til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi fyrir árið 2004. Umsóknir þurfa að hafa borist til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Borgarbraut 11 fyrir þriðjudaginn 23. mars n.k. Um styrki geta sótt félög og aðilar sem sinna íþrótta-, æskulýðs – og tómstundastarfi í sveitarfélaginu eða hafa með höndum aðra sambærilega starfsemi. …
Fjör á Öskudag !
Á þriðja hundrað manns mætti á Öskudagsgleði sem haldin var í ÍÞróttamiðstöðinni Borgarnesi s.l. miðvikudag. Það var Nemendafélag G.B. sem sá um framkvæmdina og tókst það vel eins og svo oft áður. Leiktæki voru á staðnum, flutt voru skemmtiatriði, karamelludreifing, marserað var um salinn og kötturinn sleginn úr tunnunni. Veitt voru verðlaun fyrir frumlega búninga og dansað í lokinn. Krakkarnir …
Útvarpshús í Borgarnesi
Bogi Ágústsson og Gísli EinarssonSíðastliðinn fimmtudag var formlega tekin í notkun ný aðstaða fyrir RUV að Bröttugötu 6 í Borgarnesi að viðstöddum fulltrúum RUV og sveitarfélaga á Vesturlandi. Segja má að þessi aðstaða sé fyrsta útvarpshús Vesturlands þótt ekki sé um að ræða formlega svæðisstöð en Gísli Einarsson fréttamaður rekur aðstöðuna en leigir út til afnota fyrir útvarpið. Í nýja …