Rusli þakið gólf

Nemendur í Laugargerðisskóla tóku ýmis umhverfistengd verkefni fyrir í tilefni af degi umhverfisins sem var í gær. Meðal annars tók 1. og 2. bekkur saman allan ruslpóst sem safnast hafði saman á heimilum nemenda í eina viku. Á meðfylgjandi mynd má sjá nokkra nemendur við afraksturinn. Elstu nemendur skólans gerðu könnun á bæjum um flokkun sorps og meðferð ýmiss úrgangs …

Númerslausir bílar burt

Borgarbyggð hefur gert samning við Vöku ehf, vegna bílahreinsana, aksturs, geymslu, förgunar og uppboða á bílum sem lagt er númerslausum innan marka sveitarfélagsins. Á næstunni mun hefjast vinna við þessa hreinsun þar sem númerslausar bifreiðar á lóðum og löndum sveitarfélagsins verða fjarlægðar. Hreinsunarvinnan mun vara næstu árin meðan samningurinn við Vöku er í gildi. Í hreinsunarvinnunni felst að skrifleg áminning …

Fundur um þjóðlendumál í Borgarnesi

Búnaðarsamtök Vesturlands boða til opins fundar um þjóðlendumál, fimmtudaginn 26. apríl 2007 á Hótel Borgarnesi og hefst fundurinn kl. 13.00 Dagskrá:1. Ólafur Björnsson hæstaréttarlögmaður fjallar um lög um þjóðlendur og framkvæmd þeirra.2. Gunnar Sæmundsson bóndi, fjallar um aðkomu Bændsamtaka Íslands að þjóðlendumálinu.3. Guðný Sverrisdóttir formaður Samtaka Landeigenda kynnir sjónarmið samtakanna.4. Umræður.Bændur og aðrir landeigendur er hvattir til að fjölmenna og …

Dagur umhverfisins er í dag

Einir á Langavatnsdal Dagur umhverfisins er að þessu sinni tileinkaður loftlagsmálum. Hér á eftir fara 10 heillaráð til að stuðla að minni loftmengun frá almenningi:   Keyra einkabílinn eins lítið og kostur er. Þess í stað er hægt að nota almenningssamgöngur, eða þá hjóla og ganga. Velja sparneytna bíla. Spara rafmagn í bílnum, t.d. með því að nota dagljós en …

Loftslagsmynd Al Gore í Óðali á morgun

Dagur umhverfisins er á morgun, 25. apríl. Þetta árið er hann tileinkaður loftslagsmálum og af því tilefni býður umhverfisnefnd Borgarbyggðar í samvinnu við félagsmiðstöðina Óðal íbúum sveitarfélagsins í bíó þar sem sýnd verður myndin ,,An inconvenient truth” eftir Al Gore. Sýning myndarinnar verður eins og áður sagði á morgun, miðvikudaginn 25. apríl kl 17:30 í félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi og …

Útboð og fréttir af framkvæmdum

Búið er að bjóða út gatnagerð í Borgarnesi sem tekur til nýs hverfis í Bjargslandi ásamt framlengingu Hrafnakletts, framlengingu á götu í hestahverfinu, götu að Kárastöðum auk göngustígs frá Bjargslandi að Hamri. Tvö tilboð bárust. Lægsta tilboð var kr. 99.889.600 sem var um 70% af kostnaðaráætlun. Nú liggja á skrifstofu ráðhússins útboðsgögn vegna gatnagerðar á Varmalandi. Fljótlega munu síðan gögn …

Borgarbyggð eignast hlut í Lánasjóði sveitarfélaga

Nýverið var stofnað hlutafélag um rekstur og eignir Lánasjóðs sveitarfélaga sem rekinn hefur verið undanfarin ár sem sjálfstæð stofnun. Hlutafélagið var stofnað með hlutafé að fjárhæð 5 milljarðar króna, sem skiptast á milli sveitarfélaga eftir stærð þeirra og viðskiptum við sjóðinn undanfarin ár. Nafnverð hlutafjár Borgarbyggðar er 89 milljónir sem er 1,781% eignarhlutdeild. Eignarhlutdeild í endurgreiðslu er 53,4 milljónir sem …

Brúðuleikhús í Landnámssetri í kvöld

Í kvöld verður franski Turak brúðuleikhúshópurinn með sýningu á sögulofti Landnámsseturs. Sýningin er hluti af frönsku menningarhátíðinni Franskt vor á Íslandi og er fengin hingað í af Safnahúsi Borgarfjarðar og Landnámsetur leggur til aðstöðuna. Hér er sannarlega um óvenjulega listræna uppákomu að ræða sem fólk ætti ekki að láta framhjá sér fara. Sýningin er jafnt fyrir fullorðna og börn. …

Hollvinasamtökin fá góða gjöf

Englendingavík -ljósm: RSKaupfélag Borgfirðinga og starfsmannafélag þess færðu Hollvinasamtökum Englendingavíkur góða gjöf í dag við hátíðlega athöfn vegna enduropnunar sýningarinnar um Pourquoi-pas? í Tjernihúsi. Um var að ræða 1.000.000 krónur og það var Þorvaldur T. Jónsson stjórnarformaður KB sem afhenti styrkinn til Finnboga Rögnvaldssonar sem tók við fénu fyrir hönd Hollvinasamtakanna. Ljósmynd með frétt: Úr Englendingavík – ljósmynd Ragnheiður Stefánsdóttir.

Franskt vor í Borgarnesi

Dagana 20.-23. apríl verður dagskrá á vegum Safnahúss Borgarfjarðar og Landnámsseturs Íslands í tengslum við menningarhátíðina Franskt vor á Íslandi.   Sýningin um Pourquoi Pas? – strandið verður opin og Turak brúðuleikhúshópurinn kemur fram. Sýningin Pourquoi Pas? – strandið sem er í Tjernihúsi í Englendingavík verður opin í dag, föstudag kl. 18.00-21.00 og á laugardag og sunnudag …