Dagur umhverfisins er í dag

apríl 25, 2007
Einir á Langavatnsdal
Dagur umhverfisins er að þessu sinni tileinkaður loftlagsmálum.
Hér á eftir fara 10 heillaráð til að stuðla að minni loftmengun frá almenningi:
 

  1. Keyra einkabílinn eins lítið og kostur er. Þess í stað er hægt að nota almenningssamgöngur, eða þá hjóla og ganga.
  2. Velja sparneytna bíla.
  3. Spara rafmagn í bílnum, t.d. með því að nota dagljós en ekki aðalljós í dagsbirtu.
  4. Nota vistvæna orkugjafa.
  5. Nægjusemi. Minnka neysluna. Því það þarf jú orku til að framleiða hlutina.
  6. Kaupa vörur sem framleiddar eru í næsta nágrenni.
  7. Kaupa umhverfisvottaðar vörur.
  8. Draga úr ferðalögum til útlanda.
  9. Forðast nagladekk.
  10. Minnka sorpmagnið, t.d. með því að nýta hlutina til enda og jarðgera heimavið.

Ljósmynd: Guðrún Jónsdóttir
 

Share: