Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi auglýsir eftir leikskólakennara og/eða þroskaþjálfa sem fyrst. Um er að ræða 50 % stöðu eftir hádegi, vinnutími kl. 13-17. Leikskólinn Klettaborg er 3ja deilda leikskóli sem leggur megináherslu á samskipti, skapandi starf og nám án aðgreiningar. Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögðum vinnubrögðum. Nánari upplýsingar veitir …
Ný hraðahindrun í Borgarnesi
Um þessar mundir er verið að vinna að gerð nýrrar hraðahindrunar á móts við Tónlistarskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Það er HS verktak sem annast framkvæmdina. Um verður að ræða hellulagða hraðahindrun ásamt miðeyju á milli akreina. Í framhaldinu munu fleiri hraðahindranir verða settar upp í Borgarbyggð. Meðfylgjandi myndir voru teknar fimmtudaginn 6. september síðastliðinn. (Myndir: Jökull Helgason, verkefnastj. framkvæmdasviðs, 2007) …
Leitir framundan og réttardagar í Borgarbyggð
Leitað verður á Fagraskógarfjall í Kolbeinsstaðahreppi laugardaginn 8. september. Fjallkóngur Jónas Jóhannesson á Jörva. Leit á Oddsstaðaafrétti hefst þriðjudaginn 11. sept. en ,,skálaleitarmenn” fara upp degi fyrr. Fjallkóngur er Ólafur Jóhannesson á Hóli. Föstudaginn 14. sept. hefst fyrri heiðarleit á Holtavörðuheiði, Hvítársíðuafrétti og Þverárhlíð. Fjallkóngar eru: Holtavörðuheiði – Kristján Axelsson í Bakkakoti, Þverárhlíð – Einar Örnólfsson á Sigmundarstöðum og Þorbjörn …
Tónlistarskóli Borgarfjarðar fertugur á morgun.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar verður 40 ára föstudaginn 7. september. Í tilefni dagsins verður opið hús í skólanum að Borgarbraut 23, Borgarnesi, frá kl. 14-18. Gestum er velkomið að fylgjast með kennslu, ganga um skólahúsnæðið og fá upplýsingar um starfið. Það verður kaffi á könnunni og gestum boðið að taka lagið. Öllum velkomið að líta við! Þetta er fyrsti atburðurinn í vetur …
Skógurinn á Varmalandi
Í sumar skrifaði Skógræktarfélag Íslands undir samstarfssamning við Toyota á Íslandi. Með samningnum skuldbindur Toyota sig til að styrkja rausnarlega umhirðu nokkurra valinna skóga, einn þeirra er skógurinn á Varmalandi. Skógræktarfélag Borgarfjarðar sér um framkvæmdir og nýverið hittu fulltrúar félagsins Ingibjörgu Ingu Guðmundsdóttur skólastjóra til að kynna henni verkefnið og leita leiða til að skógræktin nýtist sem best í skólastarfinu. …
Námsráðgjafi við grunnskóla Borgarbyggðar og Menntaskóla Borgarfjarðar
Elín Kristjánsdóttir hefur verið ráðin námsráðgjafi við grunnskóla Borgarbyggðar og Menntaskóla Borgarfjarðar. Elín hefur aðstöðu í Ráðhúsi Borgarbyggðar en mun flytja sig í húsnæði Menntaskólans þegar það verður tilbúið. Þrjá daga í viku fer hún á milli grunnskólanna og sinnir störfum sínum og einn dag í viku er hún á skrifstofu Borgarbyggðar. Hægt er að panta tíma hjá Elínu í …
Nýr kynningarfulltrúi hefur störf
Umhverfisfulltrúi Borgarbyggðar, Björg Gunnarsdóttir, hefur tekið við starfi kynningarfulltrúa í hlutastarfi af Hólmfríði Sveinsdóttur, sem nú hefur hætt störfum hjá Borgarbyggð. Í starfi kynningarfulltrúa felst m.a. umsjón heimasíðu. Björg hefur haft aðsetur á skrifstofu Borgarbyggðar í Reykholti og verður svo áfram. Starfhlutfall hennar verður nú 100% í stað 50% og skiptist þannig að umhverfisfulltrúastaðan er 60% og kynningarfulltrúastaðan 40%. Linda …
Leitir að hefjast í Borgarbyggð
Fyrstu leitarmenn fara af stað á Arnarvatnsheiði (Fljótsdrög) miðvikudaginn 5. september. Fjallkóngur er Ármann Bjarnason á Kjalvararstöðum. Fimmtudaginn 6. sept fara Heiðarleitarmenn (líka á Arnarvatnsheiði) af stað. Fjallkóngur Guðmundur Kristinsson á Grímsstöðum Og föstudaginn 7. sept fara Lambatungnamenn ( líka á Arnarvatnsheiði) . Lambakóngurinn er Jón Björnsson í Deildartungu. Allt safnið kemur svo niður í Fljótstungurétt síðdegis á laugardag. …
Atvinnuauglýsing
Grunnskólinn í Borgarnesi auglýsir laust 50% starf við Tómstundaskólann. Vinnutími 12:30 – 16:30. Uppeldismenntun eða reynsla af starfi með börnum æskileg. Upplýsingar veitir Gunnhildur Harðardóttir forstöðumaður í s: 866-9558.
Kynning á starfsemi Menningarsjóðs Vesturlands
Þriðjudaginn 18. september n.k. mun Elísabet Haraldsdóttir menningarfulltrúi Vesturlands verða til viðtals milli kl. 16,oo og 17,oo í Ráðhúsi Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og kynna reglur um úthlutun styrkja frá Menningarsjóði Vesturlands. Einnig mun hún veita upplýsingar og ráðgjöf varðandi umsóknir á árinu 2008. Mikilvægt er að allir þeir sem hyggja á að senda umsóknir til sjóðsins kynni …