Þrettándabrennur verða haldnar á nokkrum stöðum í Borgarbyggð. Stærsta brennan, að vanda, verður á Seleyri sunnudaginn 6. janúar kl. 17:33. Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi mun sjá um brennuna að þessu sinni fyrir hönd sveitarfélagsins. Boðið verður upp á skemmtidagskrá með m.a. flugeldasýningu, tónlistaratriði og uppistandi með Þórhalli Þórhallssyni. -Brenna verður sama dag í Kolbeinsstaðahreppi við gömlu Mýrdalsréttina við Rauðhálsa. Kveikt …
Borgfirðingahátíð 2008 – Auglýst eftir framkvæmdaraðila
Í desember síðastliðinn var auglýst eftir aðila til að taka að sér framkvæmd og umsjón Borgfirðingahátíðarinnar og rennur frestur út 7. janúar. Áætlað er að hátíðin verði að þessu sinni dagana 6. – 8. júní. Framkvæmdaraðili sér um allan undirbúning hátíðarinnar, þ.m.t. markaðs- og kynningarstarf. Allar frekari upplýsingar fást hjá menningarfulltrúa Borgarbyggðar, Guðrúnu Jónsdóttur: gudrunj@borgarbyggd.is Sjá einnig auglýsingu á blaðsíðu …
Lausar lóðir í Borgarbyggð – Umsóknarfrestur til 7. janúar 2008
Starfsmenn framkvæmdasviðs Borgarbyggðar vilja minna á að nú stendur yfir úthlutun á íbúðar- og iðnaðarlóðum í Borgarnesi, Hvanneyri og Bæjarsveit. Finna má uppdrætti sem sýna staðsetningu lóðanna hér á heimasíðu Borgarbyggðar til hliðar undir liðnum „lausar lóðir“. Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar. Nánari upplýsingar gefur Sigurjón Einarsson hjá framkvæmdasviði í síma 433-7100. Mynd með frétt: Magnús Guðjónsson
Gleðilega hátíð
. Sveitarstjórn og starfsfólk Borgarbyggðar óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Árið 2007 sem senn er á enda runnið hefur verið viðburðarríkt í Borgarbyggð og framkvæmdagleði meðal íbúa og verktaka. Það er von okkar að árið 2008 verði jafn líflegt og árið 2007 og uppbygging samfélagsins haldi áfram að þróast í átt til framfara.
Jólastund í Mími ungmennahúsi í Borgarnesi
Það var kátt á hjalla í ungmennahúsinu síðasta miðvikudag þegar ungar mæður í Borgarbyggð hittust þar og áttu saman jóla-mömmumorgun með ungana sína. Mæðurnar hafa verið að hittast þarna í vetur á miðvikudagsmorgnum og hefur þátttaka verið góð. Haldnir hafa verið fyrirlestrar sem tengjast uppeldinu t.d. um svefn ungabarna og ungbarnanudd. Svo er auðvitað bara notalegt að hittast og ræða …
Laus störf hjá Grunnskóla Borgarfjarðar
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir laus störf á Kleppjárnsreykjum við húsvörslu og skólasel. Sjá hér auglýsingu.
Jólabaðið og opnun íþróttamiðstöðva í Borgarbyggð yfir hátíðirnar
Opnunartími íþróttamiðstöðva í Borgarbyggð yfir hátíðirnar er auglýstur hér fyrir neðan. Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi og jólabaðið Íþróttamiðstöðin að Kleppjárnsreykjum Íþróttamiðstöðin að Varmalandi
Sorphirða milli hátíða í Borgarbyggð
Sorphirða verður í Borgarbyggð milli hátíða. Í Borgarnesi verða tunnur tæmdar fimmtudaginn 27. desember og á Bifröst og Hvanneyri föstudaginn 28. desember. Mynd af gámum í Norðurárdal: Björg Gunnarsdóttir
Fundartími Skipulags- og byggingarnefndar í janúar
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar fundar einungis einu sinni í janúar 2008. Janúarfundurinn verður haldinn þriðjudaginn 15. janúar kl. 8:15. Erindi og gögn þurfa að hafa borist byggingarfulltrúa Borgarbyggðar fimmtudaginn 10. janúar ef þau eiga að vera tekin fyrir á fundinum. Fundir hjá Skipulags- og byggingarnefnd eru almennt fyrsta og þriðja þriðjudag í hverjum mánuði.
Besta jólagjöfin!
Besta jólagjöfin og besta gjöf til barna og unglinga allt árið er samvera og tími með fjölskyldunni. Vímuvarnarnefnd Borgarbyggðar beinir því til foreldra að sýna ábyrgð og spilla ekki gleði barna sinna með áfengisneyslu yfir hátíðirnar. Sjá hér auglýsingu frá Vímuvarnarnefnd Borgarbyggðar. Mynd: Björg Gunnarsdóttir