Þrettándabrennur í Borgarbyggð – Allir velkomnir

janúar 3, 2008
Þrettándabrennur verða haldnar á nokkrum stöðum í Borgarbyggð. Stærsta brennan, að vanda, verður á Seleyri sunnudaginn 6. janúar kl. 17:33. Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi mun sjá um brennuna að þessu sinni fyrir hönd sveitarfélagsins. Boðið verður upp á skemmtidagskrá með m.a. flugeldasýningu, tónlistaratriði og uppistandi með Þórhalli Þórhallssyni.
-Brenna verður sama dag í Kolbeinsstaðahreppi við gömlu Mýrdalsréttina við Rauðhálsa. Kveikt verður í henni kl. 21:00.
-Ungmennafélag Reykdæla hlóð bálköst í Reykholti fyrir gamlárskvöld. Ekki var hægt að kveikja í honum þá, en í þess stað verður það gert annað kvöld, föstudaginn 4. janúar, kl. 21:00.
-Orkan, ungliðadeild ungmennafélags Dagrenningar sér um þréttandabrennu við Brautartungu í Lundarreykjardal sunnudagskvöldið 6. janúar kl. 20:00.
 
 
Mynd af flugeldum: Guðrún Jónsdóttir

Share: