Óskað er eftir kennurum við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum og að Hvanneyri http://www.gbf.is/. Æskilegar kennslugreinar sem umsækjendur geta tekið að sér að kenna eru náttúrufræði, smíðar, danska, enska og tónmennt. Einnig vantar umsjónarkennara við skólann. Umsóknarfrestur er til 11. maí. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Guðlaugur Óskarsson í s.: 4351171 og 8615971 eða í gegnum netfangið gudlaugur@gbf.is. Hér má nálgast auglýsinguna. …
Ný gjaldskrá um gatnagerðargjald og byggingarleyfisgjald
Samþykkt var í gær, 17. apríl, ný gjaldskrá um gatnagerðargjald og byggingarleyfisgjald í Borgarbyggð. Hér má nálgast hina nýju gjaldskrá. Hér má nálgast aðrar gjaldskrár hjá Borgarbyggð.
Norðurlandamót stúlkna í skák
Norðurlandamót stúlkna í skák fer fram í Osló 18. til 21. apríl. Mótið er ætlað keppendum á aldrinum 8 -20 ára. Þarna etja kappi þær stúlkur sem hvað bestum árangri hafa náð í sínum heimalöndum. Níu keppendur fóru utan til að keppa fyrir Íslands hönd og þar á meðal systurnar þær Tinna Krístin Finnbogadóttir og Hulda Rún Finnbogadóttir frá Hítardal …
Aukasýning á ,,Hárinu“ í Óðali
Leiksýningin ,,Hárið“ sem nemdendafélag Grunnskólans í Borgarnesi hefur verið að sýna í Óðali hefur notið mikilla vinsælda og því verður boðið upp á aukasýningu á árshátíð Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi á morgun, föstudagskvöldið 18. apríl. Miðapantanir í síma 437-1287 – Allra síðasta sýning! Efri myndirnar voru teknar á frumsýningu af þeim Óskari Birgissyni og Sædísi Björk Þórðardóttur. Fleiri …
Úrvalslið frá Bandaríkjunum komið í Borgarnes
Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur boðið til sín úrvalsliði frá Bandarríkjunum sem er U-15 ára leikmönnum. Liðið kom til landsins í dag og mun æfa og leika æfingaleiki í Borgarnesi.Liðið kemur frá AAU sports University í New Jersey, USA. Í liðinu eru nokkrir strákar sem eru rankaðir á topp 25 bestu í sínum aldurshópi í USA og eru háskólar í Bandaríkjunum nú …
Vel heppnaður hreinsunardagur á Hvanneyri
Í blíðskaparveðri í dag, fimmtudaginn 17. apríl, var hreinsunardagur haldinn á Hvanneyri. Nemendafélag Landbúnaðarháskólans, Landbúnaðarhaskólinn og Borgarbyggð stóðu fyrir átakinu og að öðrum ólöstuðum er rétt að þakka Nemendafélaginu sérstaklega hversu vel tókst til. Stór hópur nemenda og annarra íbúa tóku ríflega tvo tíma í það að tína rusl í hverjum krók og kima á almennum svæðum á staðnum og …
Samstarfssamningur ljósmyndasafna
Ljósmyndasafn Akraness og Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar hafa gert með sér samstarfssamning um gagnkvæm afnot af ljósmyndum vegna verkefna vorið 2008. Um er að ræða um gagnkvæm gjaldfrjáls afnot safnanna af ljósmyndum vegna sýninganna „Hernámið“ sem verður á Akranesi og „Börn í 100 ár“ sem verður í Borgarnesi. Samningurinn er gerður á grundvelli viljayfirlýsingar Akranessbæjar og Borgarbyggðar frá árinu 2007 um menningarmál, …
Jafnréttisvogin
Niðurstöður Evrópskrar jafnréttiskönnunar sem nefnd er ,,Jafnréttisvogin” eða ,,Tea for two” á ensku, hefur verið birt hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Tilgangur verkefnisins er að gera stöðu jafnréttismála í sveitarfélögum sýnilega og aðgengilega almenningi. Verkefninu er stýrt hér á landi af Jafnréttisstofu en rannsóknin náði til sveitarfélaga innan fimm ríkja í Evrópu þ.e. Búlgaríu, Grikklands, Finnlands, Íslands og Noregs. Borgarbyggð er …
Rannsókarverkefni um norræna goðafræði í Snorrastofu
Snorrastofa í Reykholti er að hrinda af stað stóru rannsóknarverkefni um norræna goðafræði. Verkefnið er gríðarlega viðamikið og munu margir helstu fræðimenn í greininni, bæði íslenskir og erlendir, koma að vinnslu þess. Verkefnið varð að veruleika fyrir áeggjan Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi forstöðumanns Árnastofnunar og fulltrúa í stjórn Snorrastofu, og strax á fyrstu stigum var ákveðið að koma verkefninu á fót …
Fyrsta skóflustungan tekin að nýjum leikskóla Andabæjar á Hvanneyri
Föstudaginn 4. apríl síðastliðinn, var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum leikskóla Andabæjar við Arnarflöt 1 á Hvanneyri. Það voru elstu nemendur leikskólans sem tóku fyrstu skóflustunguna, en því næst tók starfsmaður Jörva efh. á Hvanneyri fyrstu vélskóflustunguna, með einn af gröfuvélum Jörva. Til gamans má geta þess að Valdís Magnúsdóttir leikskólastjóri reyndi á tækjahæfileika sína í framhaldinu með því að …