Hljómskálakvintettinn ásamt Braga Bergþórssyni tenórsöngvara og Birni Steinari Sólbergssyni orgel- og píanóleikara halda tónleika í Reykholtskirkju, laugardagskvöldið 29. nóvember kl. 21:00. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Reykholtskirkju, Borgarfjarðarprófastsdæmis og Tónlistarfélags Borgarfjarðar. Sjá hér auglýsingu um tónleikana.
Ungmennaráð Borgarbyggðar
Nýstofnað Ungmennaráð Borgarbyggðar fundaði í fyrsta sinn, föstudaginn 21. nóvember, í Ráðhúsi Borgarbyggðar. Nýkjörinn formaður þess er Skúli Guðmundsson. Árið 2007 tóku gildi ný æskulýðslög á Íslandi. Æskulýðslögunum er ætlað að styðja börn og ungmenni til þátttöku í æskulýðsstarfi. Í lögunum segir m.a. ,,Með æskulýðsstarfi er átt við skipulagða félags- og tómstundastarfsemi þar sem börn og ungmenni starfa saman …
Íbúafundur í Lyngbrekku á Mýrum um aðalskipulagstillögu Borgarbyggðar
Haldinn verður íbúafundur í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum annað kvöld, 26. nóvember, kl. 20:30. Þar verða kynnt drög að aðalskipulagstillögu sveitarfélagsins, en sérstaklega farið í kynningu á skipulagi íbúðahverfis í nágrenni félagsheimilisins. Þetta er þriðji fundurinn af fjórum sem haldnir verða. Sjá umfjöllun um fundina í eldri frétt frá 7. nóvember. Aðalskipulagstillöguna má nálgast hér á heimasíðunni. …
Lýsing í dreifbýli – viðgerðir og peruskipti
Rarik mun á næstunni yfirfara lýsingu hjá þeim aðilum sem hafa tilkynnt um bilaða ljósastaura. Þeir sem hafa ljósastaura sem eru bilaðir eða skipta þarf um peru í, eru beðnir að tilkynna um slíkt til Emblu Guðmundsdóttur dreifbýlisfulltrúa í síma 691-1182 eða á netfangið embla@borgarbyggd.is
Einleikurinn Brák
Einleikurinn Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur verður sýndur í 90. sinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi í kvöld, föstudaginn 21. nóvember. Leikritið hefur notið mikilla vinsælda frá því það var frumsýnt í upphafi ársins og hefur verið uppselt á nær allar sýningarnar. Brynhildur Guðjónsdóttir samdi verkið sjálf og hlaut hún leiklistarverðlaunin Grímuna hvoru tveggja sem besta leikskáldið og sem besti leikari í …
Menningarferð í Borgarnes
Í dag, föstudaginn 21. nóvember, er starfsfólk menningarsviðs Reykjanesbæjar á ferð í Borgarnesi og kom m.a. í Safnahús Borgarfjarðar, þar sem starfsmenn Safnahússins og menningarfulltrúi Borgarbyggðar tóku á móti hópnum. Byrjað var á að skoða sýninguna „Börn í 100 ár“. Lengi var dvalið við hana og aðra skylda starfsemi í húsinu og um margt spurt, enda stór hópur menningarfólks hér …
Sjálfstraust og agi
Það var troðfullt hús í Óðal á fyrirlestri Jóhanns Inga Gunnarssonar sálfræðings fimmtudagskvöldið 20. nóvember. Enda var málefnið áhugavert “sjálfstraust og agi” ekki veitir okkur af að styrkja okkur í þeim málum á meðan við vinnum á efnahagsþrengingum þjóðarbúsins, eins gott að útbúa góða brynju þegar öll heimsins spjót snúa að okkur og ímynd heillar þjóðar hefur orðið fyrir álitshnekki. …
Íbúafundur í Brún í kvöld um aðalskipulagstillögu Borgarbyggðar
Haldinn verður íbúafundur í félagsheimilinu Brún í kvöld, 19. nóvember, kl. 20:30. Þar verða kynnt drög að aðalskipulagstillögu sveitarfélagsins, en sérstaklega farið í kynningu á skipulagi Reykholts, Kleppjárnsreykja, Bæjar og Hvanneyrar. Þetta er annar fundurinn af tveimur sem haldnir verða. Sjá umfjöllun um fundina í eldri frétt frá 7. nóvember. Aðalskipulagstillöguna má nálgast hér á heimasíðunni. Sjá hér.
Skólafréttir GBF eru komnar út
Fjórða tölublað fréttabréfs Grunnskóla Borgarfjarðar er komið út. Auk fjölbreytts efnis í Skólafréttum prýða fréttabréfið að þessu sinni margar skemmtilegar myndir frá skólalífinu á Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri. Hér má nálgast nýjasta fréttabréfið.
,,Sýndu hvað í þér býr“
Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Hvanneyri dagana 26.-27. nóvember í kennslustofu í fjósinu á Hvanneyri. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00 báða dagana. Sjá hér auglýsingu um námskeiðið. Það er Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins, …