AUGLÝSING UM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ Við alþingiskosningar laugardaginn 29. október 2016 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst …
146 fundur sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Borgarbyggðar Fundarboð 146. fundur Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar föstudaginn 28. október 2016 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 09:00 Dagskrá Fundargerð umhverfis – skipulags – og landbúnaðarnefndar 26.10. (40) Borgarnesi 27.10.2016 Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri
Fundir um ljósleiðara
Í gærkvöldi (24.10.) var haldinn fyrri fundurinn um ljósleiðaravæðingu í Borgarbyggð. Var hann haldinn í Brúarási og var hann fjölsóttur og góður. Seinni fundurinn er í kvöld (25.10.) í Lyngbrekku og hefst hann kl. 20. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér málin. Guðmundur Daníelsson ráðgjafi Borgarbyggðar í þessum málum mætir á fundinn. Myndin er frá fundinum í …
Kvennafrídagur 24.10.2016
Borgarbyggð styður konur í að taka sér frí frá störfum mánudaginn 24. október frá kl. 14:38, mæta á samstöðufundi og/eða taka þátt á táknrænan hátt í samstöðu um kröfuna um kjarajafnrétti. Laun verða ekki skert hjá þeim konum sem taka sér frí frá vinnu vegna þessa. Forstöðumenn stofnana eru beðnir um að haga skipulagi starfsins þennan dag á þann …
Hrífandi einleikur um hugrekki
Þjóðleikhúsið bauð börnum í leikskólum og grunnskólum Borgarbyggðar á sýningu á verkinu Lofthræddi Örninn Ívar í Hjálmakletti föstudaginn 14. október. Örvar er örn sem er svo óheppin að vera lofthræddur. Samt þráir hann heitt að fljúga um loftin blá. Með hjálp músarrindilsins vinar síns tekst honum að yfirvinna ótta sinn. Börnin létu vel af sýningunni og fylgdust spennt með ævintýrum …
IMPROVE ráðstefna á Írlandi
Fulltrúar IMPROVE hittust á ráðstefnu í Donegal á Írlandi þar sem viðfangsefnið var opin hugbúnaður í rafrænni opinberri þjónustu. Markmið IMPROVE er að auka nýsköpun með tæknidrifnum lausnum í opinberri þjónustu í dreifðum byggðum. Borgarbyggð er hluti að verkefninu þar sem markmið Borgarbyggðar er að efla rafræna þjónustu á umhverfis- og skipulagssviði með gagnvirkri íbúagátt. Á ráðstefnunni voru fulltrúar frá …
Auglýsing um kjörskrá
Kjörskrá Borgarbyggðar vegna alþingiskosninga sem fram fara 29. október 2016 liggur frammi á afgreiðslutíma skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14, frá og með 19. október til kjördags. Skrifstofa Borgarbyggðar
Tilkynning vegna veðurspár
Tilkynning vegna veðurspár Þar sem Veðurstofa hefur varað við gríðarlega mikilli úrkomu á öllu sunnan-og vestanverðu landinu í nótt og á morgun eru íbúar Borgarbyggðar beðnir að huga að eignum sínum. Mikilvægt er að hreinsa lauf og annað rusl af niðurföllum og úr kjallaratröppum þar sem niðurföll eru. Vefur Veðurstofu Íslands
145. fundur sveitarstjórnar
Sveitarstjórn heldur sinn 145. fund í Ráðhúsi Borgarbyggðar næstkomandi fimmtudag, 13. okt. Dagskrá Skýrsla sveitarstjóra Fundargerð 144. fundar sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 8. 09.16 Fundargerðir byggðarráðs nr. 388, 389, 390, 391. Fundargerðir fræðslunefndar nr. 145 og 146 Fundargerð umhverfis – skipul. og landb. nefndar nr. 39 Fundargerð velferðarnefndar nr. 65 Fundargerð fjallskilanefndar Rauðsgilsréttar nr. 17 Fundargerð umsjónarnefndar Einkunna nr. 56 Kjörskrá …
Umhverfisverðlaun 2016
Á Sauðamessu laugardaginn 1. október voru umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar afhentar. Eitt býli og þrjár lóðir hlutu viðurkenningu að þessu sinni. Snyrtilegasta bændabýlið: Ölvaldsstaðir IV. Snyrtilegasta lóð við íbúðarhús 2016: Fjóluklettur 18 Borgarnesi Snyrtilegasta lóð við atvinnuhúsnæði 2016: Lóð Orkuveitunnar Sólbakka Borgarnesi. Sérstök viðurkenning vegna umhverfismála 2016: Jófríður Leifsdóttir Túngötu 15 Hvanneyri fyrir fallegan garð svo og halda snyrtilegu umhverfi í nágrenni …