Allir lesa

FRÁBÆR BYRJUN ALLIR LESA Allir lesa, landsleikur í lestri, hefur farið gífurlega vel af stað og eru þegar um 1.400 virkir lesendur skráðir á vefinn. Keppendur hafa lesið í samtals 4850 klukkustundir, eða 202 daga á þeim fimm dögum sem liðnir eru af keppninni. Konur eru þar í miklum meirihluta allirlesa.is, alls 79.1%, karlar aðeins 19.8% og 1.1% notenda velja …

Viðlagatrygging Íslands

„Viðlagatrygging Íslands (VTÍ ) heimsótti Borgarbyggð í síðustu viku, en heimsóknin er liður í átaki stofnunarinnar til að bæta þekkingu á hlutverki hennar og skráningu opinberra mannvirkja í eigu sveitarfélaganna sem vátryggð eru hjá VTÍ. Fundarmenn áttu góðar og markvissar samræður um vátryggingavernd mannvirkja í eigu sveitarfélagsins og um mikilvægi þess að skráð verðmæti þeirra sé uppfært reglulega til að …

Komst í úrslit í Vox Domini

Síðastliðna helgi stóð Félag íslenskra söngkennara (Fís) fyrir söngkeppni „Vox Domini“ og komu þar fram nemendur og söngvararar í klassískum söng.  Þetta er í fyrsta sinn sem Fís stendur fyrir slíkri keppni. Lengra komnum söngvurum sem eru að feta sín fyrstu spor á söngferlinum og einnig nemendum sem hafa lokið grunnprófi eiga þess kost að taka þátt í keppni þessari. Unnur …

Vetrarþjónusta í uppsveitum Borgarbyggðar

Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði um vetrarþjónustu Vegagerðarinnar í uppsveitum Borgarfjarðar á fundi sínmum þann 12. janúar s.l. og var eftirfarandi ályktun samþykkt. „Á undanförnum árum hefur átt sér stað mikil uppbygging ferðaþjónustu í uppsveitum Borgarbyggðar. Aðsókn ferðafólks að þessu svæði hefur stóraukist og á það jafnt við um sumar og vetur. Tugir þúsunda koma í Íshellinn í Langjökli og fer aðsókn …

Söfnun á heyrúlluplasti 30. jan. – 3. febrúar

Íslenska gámafélagið sækir heyrúlluplast til bænda dagana 30. janúar  – 3. febrúar.  Líkt og undanfarið hefst söfnunin í vestanverðu sveitarfélaginu og síðari hluta vikunnar verður bíllinn á ferð í uppsveitum Borgarfjarðar. Allir þeir sem vilja láta sækja plast til sín eru beðnir að senda upplýsingar um nafn, heimilisfang og símanúmer beint til Gunnars hjá Íslenska Gámafélaginu á netfangið gunnarh@igf.is  eða …

Hvernig sérðu Borgarnes fyrir þér í framtíðinni?

Þann 22. mars 2017 verða liðin 150 ár frá því að Kristján VIII Danakonungur undirritaði löggildingarskjal þess efnis að Borgarnes hlyti stöðu sem löggiltur verslunarstaður. Í skjalinu er kveðið á um að heimilt sé að reisa sölubúðir og reka verslun við Brákarpoll allt árið.  Af þessu markast afmæli staðarins. Sveitarstjórn Borgarbyggðar mun minnast þessara tímamóta með hátíðarfundi á afmælisdaginn. Hátíðarnefnd …

Borgarbraut 59

Samkvæmt úrskurði Úskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála,  mál 143/2016, var byggingarleyfi fyrir Borgarbraut 59 sem gefið var út þann 5. október 2016 fellt úr gildi þann 23.12.2016. Í framhaldinu tók Byggingarfulltrúi þá ákvörðun um að önnur hæð yrði frágengin með reisningu útveggja eininga og innveggja eininga ásamt plötusteypu til að tengja saman veggeiningar og plötu. Það var gert í því skyni …

Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð

Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2017.  Álagningarseðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri og til fyrirtækja. Vakin er athygli á að allir álagningarseðlar eru aðgengilegir á „mínum síðum“ á netsíðunni www.Island.is.  Einnig geta þeir sem þess óska haft samband við skrifstofu Borgarbyggðar og fengið senda álagningarseðla í pappírsformi. Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti …

Heilsueflandi samfélag

Fyrsti fundur stýrihóps um heilsueflandi samfélag var haldinn í Ráðhúsi Borgarbyggðar sl. fimmtudag. Gestir fundarins voru Ólöf Sívertsen lýðheilsufræðingur og fagstjóri hjá Skólum ehf. og Aldís Stefánsdóttir forstöðumaður þjónustu og samskiptadeildar Mosfellsbæjar. Kynntu þær innleiðingarferli Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ.  Einnig svöruðu þær fyrirspurnum og tóku þátt í umræðu. Næstu skref í  vinnu hópsins er að greina stöðu næringar, hreyfingar, líðan …