Í dag 11. október fagnar leikskólinn 39 ára afmæli sínu og af því tilefni ákvað Blær að koma alla leið frá Ástralíu til að hjálpa börnunum að vera góður félagi og gæta vel hvers annars. Því miður týndust bangsapakkarnir á leiðinni en sem betur fer hjálpaði Björgunarsveitin Brák til og voru það þær Sigurborg og Vigdís foreldrar í leikskólanum sem …
Menningarminjadagur Evrópu á Vesturlandi
Nú á að fara að halda uppá menningarminjadag Evrópu um allt land. Hér á vesturland verður menningarminjadagurinn haldinn laugardaginn 14. október og mun Hulda Guðmundsdóttir a Fitjum kynna verkefnið „Framdalurinn Fitjasókn i Skorradal, verndarsvæði í byggð“. Komið verður saman við Fitjar, í botni Skorradals, kl. 14:00. Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins.
Íþróttaskóli fyrir börn á aldrinum 2 – 6 ára
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi iðar af lífi á laugardagsmorgnum þegar um 60 börn koma saman með fjölskyldu sinni í íþróttaskólann. Helsta markmið hans er að börnin kynnist íþróttum á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt. Börnin æfa grófhreyfingar, jafnvægi, styrk , úthald og líkamsvitund, læra hópleiki og að fylgja þeim reglum sem settar eru í þeim og styrkja með því félagsfærni barnanna. Auk …
162. fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar
SVEITARSTJÓRN BORGARBYGGÐAR FUNDARBOÐ FUNDUR Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 12. október 2017 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 14.9. (161) Fundargerð byggðarráðs 21.9,28.9,4.10. (427, 428, 429) Fundargerð fræðslunefndar 29.9. (160) Fundargerð umhverfis – skipulags og landb.n. 4.10 (55) Fundargerð velferðarnefndar 6.10 …
Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni
Öll börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára fá styrk til frístundaiðkunar. Framlagið er kr. 20.000 á ári og er markmið þess að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi í Borgarbyggð. Hægt er að nýta frístundastyrk í: skipulagt frístundastarf í Borgarbyggð sem stundað er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt í amk. 10 vikur. …
Umhverfisviðurkenningar 2017
Snyrtilegasta bændabýlið 2017 Traðir í Hraunhrepp Þar er stunduð æðarrækt og dúntekja. Einstaklega snyrtilegt er heim að líta og sjá má að mikil áhersla er lögð á að halda vel við öllum mannvirkjum. Umgengni er til mikillar fyrirmyndar sem samræmist vel þeirri náttúrufegurð sem þarna ríkir. Snyrtilegasta lóð við íbúðarhús 2017 Svava Finnsdóttir í Bóndhól Aldingarðurinn umhverfis hús Svövu …
Ljósberinn – viðurkenningar
Ljósberinn er viðurkenning sem velferðarnefnd Borgarbyggðar veitir þeim stofnunum og fyrirtækjum sem stuðla að atvinnuþátttöku fatlaðra með því að veita þeim vinnu. Á Sauðamessu 2017 voru eftirtöldum veitt þessi viðurkenning: Pósturinn í Borgarnesi Safnahús Borgarfjarðar Leiksk. Ugluklettur Brákarhlíð Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi Leiksk. Klettaborg Golfklúbbur Borgarness Myndin sýnir fulltrúa þessara fyrirtækja/stofnana með viðurkenninguna. Ennfremur hlutu viðurkenningu Ráðhús Borgarbyggðar Menntaskóli Borgarfjarðar Grunnskólinn …
Hreinsunarátak í dreifbýli stendur yfir
Minnt er á að hreinsunarátak í dreifbýli stendur yfir og gámar verða til staðar til 16. október. Vegna mistaka var röng staðsetning kynnt í fyrri auglýsingu. Vakin er athygli á að gámar eru við Síðumúla en ekki Síðumúlaveggi. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Hreinsunarátak að hausti verður dagana 2.- 16. október. Gámar fyrir timbur- og málmúrgang verða aðgengilegir á …
Auglýst eftir fulltrúa íbúa í Upplýsinga- og lýðræðisnefnd
Til að styrkja þróun upplýsingamála og efla enn frekar lýðræðislega umræðu meðal íbúa sveitarfélagsins skipaði sveitarstjórn Borgarbyggðar nefnd til að móta stefnu í upplýsinga- og lýðræðismálum sveitarfélagsins. Nefndinni er ætlað að starfa til loka kjörtímabilsins. Nefndin á að vera skipuð einum fulltrúa frá hverju framboði sem á fulltrúa í sveitarstjórn (alls fjórir) og einum aðila sem verði valinn á annan …
Fann sjálfa sig
Af vef Safnahúss Borgarfjarðar safnahus.is Það gerist stundum á sýningunni Börn í 100 ár í Safnahúsi að gesti safnsins er að finna á ljósmyndunum sem þar eru. Þetta gerðist m.a. í gær þegar Ester Hurlen sótti sýninguna heim og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Ljósmyndin sem hún er á er úr safni Bjarna Árnasonar frá Brennistöðum í Flókadal …








