Ljósberinn – viðurkenningar

Ljósberinn er viðurkenning sem velferðarnefnd Borgarbyggðar veitir þeim stofnunum og fyrirtækjum sem stuðla að atvinnuþátttöku fatlaðra með því að veita þeim vinnu. Á Sauðamessu 2017 voru eftirtöldum veitt þessi viðurkenning: Pósturinn í Borgarnesi Safnahús Borgarfjarðar Leiksk. Ugluklettur Brákarhlíð Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi Leiksk. Klettaborg Golfklúbbur Borgarness Myndin sýnir fulltrúa þessara fyrirtækja/stofnana með viðurkenninguna. Ennfremur hlutu viðurkenningu Ráðhús Borgarbyggðar Menntaskóli Borgarfjarðar Grunnskólinn …

Hreinsunarátak í dreifbýli stendur yfir

Minnt er á að hreinsunarátak í dreifbýli stendur yfir og gámar verða til staðar til 16. október. Vegna mistaka var röng staðsetning kynnt í fyrri auglýsingu. Vakin er athygli á að gámar eru við Síðumúla en ekki Síðumúlaveggi. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Hreinsunarátak að hausti verður dagana 2.- 16. október. Gámar fyrir timbur- og málmúrgang verða aðgengilegir á …

Auglýst eftir fulltrúa íbúa í Upplýsinga- og lýðræðisnefnd

Til að styrkja þróun upplýsingamála og efla enn frekar lýðræðislega umræðu meðal íbúa sveitarfélagsins skipaði sveitarstjórn Borgarbyggðar nefnd til að móta stefnu í upplýsinga- og lýðræðismálum sveitarfélagsins. Nefndinni er ætlað að starfa til loka kjörtímabilsins. Nefndin á að vera skipuð einum fulltrúa frá hverju framboði sem á fulltrúa í sveitarstjórn (alls fjórir) og einum aðila sem verði valinn á annan …

Fann sjálfa sig

Af vef Safnahúss Borgarfjarðar safnahus.is Það gerist stundum á sýningunni Börn í 100 ár í Safnahúsi að gesti safnsins er að finna á ljósmyndunum sem þar eru.  Þetta gerðist m.a. í gær þegar Ester Hurlen sótti sýninguna heim og var þessi mynd tekin við það tækifæri.  Ljósmyndin sem hún er á er úr safni Bjarna Árnasonar frá Brennistöðum í Flókadal …

Frá Ráðhúsi Borgarbyggðar

Á morgun, föstudaginn 6. október verður skrifstofum Borgarbyggðar lokað kl. 14 í stað 15 líkt og verið hefur.

Næstu skref í heilsueflingu Borgarbyggðar

Út er komin áfangaskýrsla um heilsueflingu í Borgarbyggð en gengið var frá samningi við Embætti landlæknis sl. vor um þátttöku Borgarbyggðar í verkefninu Heilsueflandi samfélag.  Heilsueflandi samfélag er samfélag sem setur heilsu og heilsueflingu í forgrunn í allri stefnumótun og þjónustu og býr þar með til aðgengi og umgjörð sem gerir öllum íbúum kleift og auðvelt að taka heilsusamlegar ákvarðanir. …

Náttúran – lýðheilsuganga FI og UMSB

Síðasta lýðheilsuganga Ferðafélags Íslands og UMSB var farin undir yfirskriftinni Náttúran miðvikudaginn 27. september kl.17:00. Gengið var á Hafnarfjallið, upp að “steini”. Gengið var eftir gönguleið uppí hlíðar fjallsins. Var þátttaka góð en tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.  Allar upplýsingar …

Starfsemi Safnahúss Borgarfjarðar á næstunni

Safnahúsið verður að venju með öflugt menningarstarf í vetur og hefst dagskráin í lok október með fyrirlestrum á sviði arkitektúrs og sagnfræði. Fimmtudaginn 26. október n.k. flytur Sigursteinn Sigurðsson arkitekt erindi sem hann nefnir „Mannvirkin og sagan: Húsahönnun í héraði.“ Nokkrum vikum síðar eða 16. nóvember, verður fyrirlestur Heiðars Lind Hanssonar sagnfræðings á dagskrá með efni úr sögu Borgarness. Sýningin Tíminn …

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða – umsóknir um styrki

Þann 25. september var opnað fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2018. Umsóknarfrestur er til 25. október næstkomandi. Vakin er sérstök athygli á að í kjölfar lagabreytinga er nú í fyrsta sinn auglýst í samræmi við nýjar reglur sem um sjóðinn gilda. Sjá nánar á heimasíðu Ferðamálastofu https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/auglyst-eftir-umsoknum-um-styrki-fra-framkvaemdasjodi-ferdamannastada