Sumarstörf barna og unglinga

Út er kominn bæklingur þar sem kynnt er það sem börnum og unglingum stendur til boða í Borgarbyggð í sumar. Hér er hægt að skoða bæklinginn á acrobat reader formi.

Mikið um skólahópa í sundi

Þessa dagana er mikið fjör á sundlaugarsvæðinu í Borgarnesi og hafa fleiri hundruð ungmenni allstaðar af að landinu notið þess að koma við ísundlauginni og prófa vatnsrennibrautirnar góðu. Stopp í Borgarnesi er því orðin fastur liður í mörgum skólaferðalögum ár eftir ár.Á myndinni eru kátir krakkar úr Lækjarskóla Hafnarfirði.

Endurbættur sparkvöllur í Sandvíkinni

Sparkvöllurinn sem þökulagður var í fyrra á leiksvæðinu í Sandvíkinni hefur nú verið tekinn í notkun með nýjum mörkum og mjúku grasi. Er þetta himnasending fyrir unga og duglega sparkunnendur en heimsmeistarakeppnin veldur því að þeir þurfa sjálfir að fara yfir marga góða takta sem sjást á skjánum um þessar mundir og kemur þá sparkvöllurinn sér vel.

Fljúgum hærra!

Nú styttist óðum í Borgfirðingahátíðina, sem haldin verður dagana 14.-17. júní. Undirbúningur er á fullu og er dagskráin að fá á sig endanlega mynd. Þar kennir ýmissa grasa. Dagskrána er að finna í heild sinni hér. Laugardaginn 8. júní verður tekið forskot á sæluna með “Forleik að Borgfirðingahátíð”. Þar ríður Systrakvartettinn úr Borgarnesi á vaðið og heldur lauflétta tónleika í …

Veggspjald til kynningar á Staðardagskrá 21

Staðardagskrá 21 er hugtak sem margir þekkja. Þó ekki allir, enda vefst heiti verkefnisins fyrir einhverjum. Til þess að auðvelda íbúum Borgarbyggðar að átta sig á verkefninu og mikilvægi sjálfbærrar þróunar hefur stýrihópur um Staðardagskrá 21 látið útbúa veggspjald. Veggspjaldinu er ætlað að skýra frá því hvað Staðardagskrá 21 er, hvað sjálfbær þróun þýðir og síðast en ekki síst að …

Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Borgarbyggð.

Nú liggja fyrir úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Borgarbyggð sem fram fóru laugardaginn 25. maí s.l.   Á kjörskrá voru 1.775 og kusu 1.393 sem er 78,47% kjörsókn.   Atkvæði féllu þannig: B-listi Framsóknarflokks fékk 522 atkvæði og 3 menn kjörna. D-listi Sjálfstæðisflokks fékk 546 atkvæði og 4 menn kjörna. L-listi Borgarbyggðarlista fékk 261 atkvæði og 2 menn kjörna.   Auðir og …

Starfsmenn Íþróttamiðstöðvarinnar á námskeiði

Starfsmenn Íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá og íþróttamannvirkja í Borgarnesi hafa verið á sameiginlegu þjónustu- og skyndihjálparnámskeiði. Að sögn Sigurður Guðmundssonar íþróttafulltrúa og Indriða Jósafatssonar íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í Borgarnesi er námskeiðið liður í símenntun starfsmanna þessara vinnustaða. Með því að vera með sameiginleg námskeið er hægt að ná kostnaði niður og hægt að hafa námskeiðin markvissari. “Þessi hópur vill líka oft …

Kosningaútvarp á netinu

Kosningaútvarp Borgarbyggðar stendur nú yfir og næst útsending þess innan Borgarness. Til að koma til móts við þá sem búsettir er fjærst Borgarnesi eða jafnvel erlendis en hafa samt áhuga á þessari útsendingu verður dagskránni einnig útvarpað á netinu. Smelltu hér til að hlusta!

Ársreikningur 2001

Á fundi bæjarstjórnar Borgarbyggðar 16. maí s.l. var ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2001 tekin til seinni umræðu og samþykktur. Skatttekjur námu 560,7 mkr á árinu 2001, sem er 12,4% hækkun frá fyrra ári. Rekstrargjöld málaflokka að frádregnum þjónustutekjum námu 533,3 mkr sem var 20,2% hækkun milli ára. Framlegð fyrir fjármagnsliði nam 27,4 mkr en var áætluð 64,1 mkr. Gjaldfærð og …

Ný leikskóladeild í byggingu í Bifröst

Borgarbyggð bauð nýverið út byggingu leikskóladeildar á Bifröst. Þrjú tilboð bárust og hefur verið samið við lægstbjóðanda, S.Ó. húsbyggingar s.f. um verkið. Samningurinn hljóðar upp á 33,6 milljónir króna en framkvæmdin kostar í heild um 45 milljónir króna. Þetta er stærsta framkvæmd á vegum Borgarbyggðar á árinu 2002.   Ný leikskóladeild á Bifröst verður 220 fermetrar auk 20 fermetra tengigangs …