Opið hús í Klettaborg á morgun

Miðvikudaginn 18. apríl kl. 15.00-16.30er opið hús í leikskólanum Klettaborg, (að Borgarbraut 101 og í Mávakletti 14 í Borgarnesi). Börnin bjóða foreldrum sínum og öðrum áhugasömum að skoða leikskólann. Boðið verður upp á kaffi og kökur sem börnin hafa bakað. Til sýnis verða verk barnanna og myndbandsupptaka frá danskennslunni.  

Fyrsta stjórn Landbúnaðarsafns Íslands

Frá Búvélasafninu Nú hafa allir stofn- og stjórnaraðilar Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri ákveðið tilnefningu fulltrúa sinna.   Ennfremur breytist veffang heimasíðu Búvélasafnsins brátt úr www.buvelasafn.is í www.landbunadarsafn.is.   Aðdáendur pistla Bjarna Guðmundssonar á heimasíðu Búvélasafnsins þurfa hins vegar engu að kvíða þótt nýtt veffang taki gildi, því hann mun ritstýra vef hins nýja safns jafnframt því að annast framkvæmdastjórn þess. …

Málþing um málefni innflytjenda

Þann 17.apríl næstkomandi verður haldið málþing um málefni innflytjenda á Vesturlandi. Málþingið verður haldið í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík og mun hefjast kl.12:30 með léttum veitingum og er áætlað að því ljúki kl.15:30. Leitast verður við að svara spurningunni: Hvernig hafa sveitarfélög, atvinnurekendur og íbúar á Vesturlandi tekið á móti innflytjendum ? Markmiðið með málþinginu er m.a. að varpa ljósi á …

Hver var Freyja?

SnorrastofaÞriðjudaginn 17. apríl nk. kl. 20.30 mun Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur og þýðandi, flytja í Snorrastofu fyrirlesturinn ,,Hver var Freyja?”. Mun Ingunn fjalla um ímynd og hlutverk Freyju í norrænni heiðni. Erindi Ingunnar er það fyrsta í röðinni ,,fyrirlestrar í héraði” sem er árlegt framtak Snorrastofu. Ingunn (f. 1952) lauk BA pófi í ensku og almennum bókmenntum frá Háskóla Íslands árið …

Frá Grunnskólanum í Borgarnesi

Kennarar athugið Við Grunnskólann í Borgarnesi eru stöður grunnskólakennara lausar til umsóknar. Meðal kennslugreina er kennsla yngri barna (stöður umsjónarkennara), textílmennt, sérkennsla sem og almenn kennsla í unglingadeild. Í skólanum eru um 330 nemendur og fer fjölgandi enda er Borgarnes ört vaxandi staður. Uppbyggingarstefnan – uppeldi til ábyrgðar er höfð að leiðarljósi í öllu starfi skólans. Skólinn er „skóli á …

Góð þjónusta vel þegin

Alls nýttu um 2.300 manns sér þjónustu sundstaða í sveitarfélaginu í páskaleyfinu, en opið var í íþróttamiðstöðvum alla hátíðardagana í Borgarnesi, á Kleppjárnsreykjum og á Varmalandi. Langflestir fóru í sund í Borgarnesi og er þar um að ræða nokkra aukningu frá því í fyrra.   Starfsmenn sundstaða sveitarfélagsins lögðu það á sig að vinna um helgidagana og fá hrós fyrir …

Heilsuræktarátak fyrir konur hefst á mánudag

Sex vikna lokað átaksnámskeið fyrir konur hefst næsta mánudag, þann 16. apríl í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Skráning er þegar hafin í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar. Tímarnir verða á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. kl. 17.oo – 18.oo. Góð hreyfing og styrktaræfingar fyrir allan aldur 3 lokaðir tímar á viku Frjáls mæting í þreksal fyrir utan þessa tíma Mælingar og vigtun við upphaf og …

Staða skipulagsmála í dag

Upplýsingar um stöðu skipulagsverkefna sem eru í vinnslu í sveitarfélaginu hverju sinni eru uppfærðar reglulega.   Sjá má skrá yfir þær undir starfsemi/skipulagsmál/staða skipulagsmála hér á síðunni. Ljósmyndin með fréttinni er af byggingasvæði við Borgarnes. Ljósmynd: Ragnheiður Stefánsdóttir.

Aðalfundur Menningarráðs Vesturlands

Aðalfundur Menningarráðs Vesturlands verður haldinn í Klifi í Ólafsvík á morgun, 11. apríl 2007. Fundurinn hefst kl. 14.00 og að loknum aðalfundarstörfum flytur Ágúst Einarsson rektor háskólans á Bifröst erindi sem nefnist: Menning – tækifæri Vesturlands í nýrri atvinnuháttarbyltingu. Dagskrá: Kl. 14.00 Aðalfundur settur. Helga Halldórsdóttir formaður Menningarráðs. Starfsmenn aðalfundar skipaðir. Skýrsla stjórnar um starfsemi á liðnu starfsári. Helga Halldórsdóttir …

Alnafna og barnabarn fer með aðalhlutverk

Leikritið Ása í ástandinu verður frumsýnt í Þinghamri í Stafholtstungum í kvöld. Leikritið er eftir Andreu Davíðsdóttur frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð og er sett upp í tilefni af 30 ára afmæli leikdeildar Ungmennafélags Stafholtstungna. Svo skemmtilega vill til að það er alnafna Andreu og barnabarn sem fer með aðalhlutverkið, Andrea Davíðsdóttir á Hvassafelli. Með önnur hlutverk fara Þorbjörn Oddsson Háafelli, …