Kvenfélag Borgarness á norræna skjaladeginum

Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum hafa frá 2001 sameinast um árlegan norrænan skjaladag sem í ár var 14. nóvember. Af því tilefni er opnuð sameiginleg heimasíða: www.skjaladagur.is (smellt er á mynd af blómabeði í efstu röð).Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar tekur þátt í norræna skjaladeginum með framlagi á vef skjaladagsins um Kvenfélag Borgarness og þátt þess í uppbyggingu Skallagrímsgarðsins í Borgarnesi Af þessu tilefni …

Frétt úr æskulýðsstarfinu

Félagsmiðstöðin Gaukurinn á Bifröst hefur svo sannarlega gengið í endurnýjun lífdaga þetta haustið. Félagsmiðstöðin er komin með öfluga formennsku eða Gauksráð eins og það er kallað. Það eru þær Jóhanna formaður, Tinna gjaldkeri og Gabríela ritari sem skipuleggja dagskrá í félagsmiðstöðinni sem er opin öllum unglingum í Varmalandsskóla einu sinni í viku þ.e. á fimmtudagskvöldum frá kl. 20.00 – 22.00. …

Að skapa úr orðum

Eitt sinn var gleði á labbi hitti þar brosið gleðin og brosið héldu áfram hittu þar hamingjuna.     Ljóð fimmtu bekkinga í grunnskólum í Borgarfirði og nágrenni eru nú til sýnis í Safnahúsi í Borgarnesi. Börnin fengu ákveðin efni til að fjalla um og ljóðin bera þess vitni að þau kunna að skapa úr orðum eins og sjá má …

Gatan Arnarklettur malbikuð

Fimmtudaginn 5. nóvember síðastliðinn var sá hluti götunnar Arnarkletts í Borgarnesi sem ófrágengin var, malbikaður. Verkið var boðið út á síðastliðu ári og voru tilboð opnuð 22. október í fyrra. Alls bárust tilboð frá þremur aðilum og var í kjölfarið samið um verkið við Borgarverk sem jafnframt var lægstbjóðandi. Eins og fyrr segir er malbikun götunnar lokið en ákveðið hefur …

Fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi og Klettaborgar

Út eru komin fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi og BROS sem er fréttabréf leikskólans Klettaborgar. Í þeim er sagt frá starfi skólanna í vetur, atburðum framundan og fleira. Hægt er að lesa fréttabréf Grunnskólans i Borgarnesi hér og BROS Klettaborgar má lesa hér.  

Skallagrímur oldboy’s fallnir úr Subwaybikarnum

mynd_SLÁ sunnudagskvöld fór fram í Dalhúsum Grafarvogi leikur í 32 liða úrslitum í Subwaybikarnum í körfuknattleik. Áttust þar við heimamenn í úrvalsdeildarliði Fjölnis og Skallagrímur -b. úr Borgarnesi. Lið Skallagríms- b. samanstóð af ungum og óreyndum leikmönnum annars vegar og reyndum félögum úr oldboy‘s liði Skallagríms hins vegar. Menn mættu ákveðnir í leikinn þrátt fyrir sterka mótherja enda mótherjinn í …

Ljóðasýning í Safnahúsi Borgarfjarðar

Frá ljóðasýningunni í fyrra_GJNæstkomandi fimmtudag þann 12. nóvember kl. 16.00 verður opnuð ljóðasýning barna í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar sýna krakkar í fimmtu bekkjum í grunnskólunum í nágrenninu ljóð sín um leið og sérstök dagskrá verður af þessu tilefni. Ljóð verða lesin upp og Hildur M. Jónsdóttir frá Brúðuheimum í Borgarnesi kemur á svæðið og fjallar um sköpunarþáttinn í …

Forvarna- og æskulýðsball í Borgarnesi

Frétt af vef unglinganna í Óðali.   Hljómsveitin BuffNæstkomandi fimmtudag mun Nemendafélag Grunnskóla Borgarnes og félagsmiðstöðin Óðal halda árlegt Forvarna- og æskulýðaball. Þessi frábæri viðburður á sér langa sögu í félagsstarfi unglinga á Vesturlandi og teygir reyndar anga sína í Dalina og allt norður á Hólmavík og Blönduós. Dansleikurinn verður haldin í hátíðarsal Menntaskóla Borgarfjarðar. Húsið opnar kl. 19:30. þá …

Eldvarnaræfingar í leik- og grunnskólum

Undanfarið hefur Slökkvilið Borgarbyggðar verið með fræðslu í leikskólunum fyrir elstu börnin. Eins og undanfarin haust er unnið með verkefnið Loga og Glóð. Rætt er við börnin um nauðsyn þess að brunavarnir séu í lagi bæði í leikskólunum og ekki síður á heimilum þeirra. Börnin fá möppu með verkefnum sem þau vinna í skólanum og heima með foreldrum sínum. Þegar …

Basar á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi

Hinn árlegi basar Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi verður haldinn laugardaginn 7. nóvember næstkomandi. Húsið opnar kl. 15:00 og verða munir sem unnir eru af heimilisfólkinu til sýnis milli kl. 15:00 og 16:00. Sala á mununum hefst síðan stundvíslega kl. 16:00. Kaffisala verður á staðnum kl. 15:00 – 17:30. Allur ágóði af kaffisölunni rennur í ferðasjóð heimilisfólks. Nemendur úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar …