Skallagrímur í úrvalsdeild

Skallagrímur tryggði sér að nýju sæti í úrvalsdeildinni í körfubolta karla eftir glæsilegan sigur á ÍA í hreinum úrslitaleik í gærkvöldi. Troðfullt var í íþrótthúsinu í Borgarnesi, en talið er að rúmlega 900 áhorfendur hafi fylgst með leiknum og stemmningin var frábær. Til hamingju Skallagrímur! mynd_Skessuhorn  

Sýningum fer fækkandi í Logalandi

Sýningum á revíunni „Ekki trúa öllu sem þú heyrir” (og ekki trúa öllu sem þú sérð) sem Ungmennafélag Reykdæla sýnir um þessar mundir í félagsheimilinu Logalandi fer nú fækkandi. Leikritið hefur fengið góðar viðtökur og þykir skemmtileg innansveitarkróníka. Sýnt er í kvöld, miðvikudag og næsta laugardag 31. mars og síðustu sýningar eru áætlaðar á miðvikudag 4. apríl og laugardag 7. …

Árangur íbúa Borgarbyggðar í flokkun úrgangs í febrúar 2012

Komið er á heimasíðuna yfirlit yfir árangur sorpflokkunnar íbúa Borgarbyggðar í febrúar 2012.   Á síðunni ,,Yfirlit yfir árangur flokkunar úrgangs innan Borgarbyggðar” má einnig sjá árangurinn í janúar 2012 og síðan hlutfall og magn úrgangs fyrir allt árið 2011.  

Tilkynning frá leikfélagi Menntaskólans

Síðustu sýningar á Stútungasögu í Hjálmakletti verða þriðjudaginn 27. mars kl. 18.00 og fimmtudaginn 29. mars kl. 20.00. Sýningar 30. og 31. mars falla niður af óviðráðanlegum orsökum. Beðist er velvirðingar á því. Aukasýningar eftir páska verða auglýstar síðar.  

Stútungasaga í Hjálmakletti

Frá leikfélagi MB Leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýnir Stútungassögu, í leikstjórn Stefáns Benedikts Vilhelmssoar, föstudaginn 23. mars í Hjálmakletti. Stútungasaga byggir á gamansaman hátt á fornsögunum, einkum Sturlungu. Bændur berjast og brenna bæi hvers annars, gifta syni sína og dætur eftir hentugleikum og skreppa í heimsóknir til konungshjónanna af Noregi inn á milli bardaga, bruna og brúðkaupa. Farið er vandlega í …

Árshátíð Grunnskólans í Borgarnesi 2012

Árshátíð Grunnskólans í Borgarnesi verður haldin í Hjálmakletti fimmtudaginn 22. mars. Sýningar verða tvær, sú fyrri hefst kl. 16.30 og sú seinni kl. 18.30. Þema árshátíðarinnar í ár er heilbrigði og hollusta. Auglýsingu má sjá hér.  

Afmælis- og árshátíð á Kleppjárnsreykjum

Afmælis- og árshátíð Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum verður haldin fimmtudaginn 22. mars kl. 15.00. Skólinn fagnar nú hálfrar aldar afmæli sínu og af því tilefni verður fyrirkomulag árshátíðarinnar með öðru sniði en undanfarin ár. Nemendur munu flytja mismunandi verk í skólahúsinu, stuttmyndir, viðtöl, ljósmyndir, afrekssögu nenenda, gera tískunni skil og margt fleira. Þá verða leikrit flutt á sviði í íþróttahúsinu. …

Laust störf við Grunnskóla Borgarfjarðar skólaárið 2012-2013

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir sérkennara við Kleppjárnsreykjadeild og deildarstjóra við Varmalandsdeild. Umsóknarfrestur er til 30.apríl 2012. Allar nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262/430-1500. Einnig er hægt að senda fyrspurn á netfangið inga@gbf.is    

Fundi um landbúnaðarmál frestað

Íbúafundi um landbúnaðarmál sem halda átti þann 3. apríl næstkomandi er frestað til 17. apríl. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti og verður auglýstur nánar þegar nær dregur.  

Sumarstörf hjá íþróttamiðstöðvum Borgarbyggðar 2012

Íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar auglýsa eftir sumarafleysingafólki í Borgarnesi, á Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. Borgarnes: Laus störf 4 karla og 3 kvenna frá 4. júní til 31. ágúst. Kleppjárnsreykir: Karlmann frá 1. júní til 19. ágúst og konu í 6 vikur. Varmaland: Karl og konu frá 1. júní til 19. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Ingunn í síma 437 1444. Umsóknarfrestur er til 31. …