Bókagjöf til Grunnskólans í Borgarnesi

Grunnskólinn í Borgarnesi fékk á dögunum veglega bókagjöf. Það voru fulltrúar Kvenfélags Borgarness sem komu færandi hendi í skólann og gáfu milli 70 og 80 bækur. Þær Jóhanna Skúladóttir, Sæbjörg Kristmannsdóttir og Inga Birna Tryggvadóttir fylgdu svo gjöfinni úr hlaði. Þessar bækur nýtast afar vel í læsisverkefninu í 1. og 2. bekk en af hverri bók eru mörg eintök. Skólinn …

118 heimili njóta félagslegrar heimaþjónustu

Í ársskýrslu félagsþjónustu Borgarbyggðar kemur fram að á síðasta ári nutu 118 heimili félagslegrar heimaþjónustu frá sveitarfélaginu. Ellilífeyrisþegar eru stærsti hluti notenda eða 90 en öryrkjar njóta einnig þjónustunnar. Fram kemur að þjónustuþegar eru flestir í Borgarnesi eða 86, en 32 búa í dreifbýlinu. Konur á ellilífeyri eru stærsti hópur notenda eða 42 meðan karlar á ellilífeyri eru 21 og …

Tveir hundar í óskilum

Tveir svartir og hvítir Border Collie hundar eru í vörslu Borgarbyggðar. Þeir voru handsamaðir í Svignaskarði í dag en þar höfðu þeir verið á vergangi frá því síðastliðinn laugardag. Þeir eru vel haldnir, mjög hlýðnir og greinilega vanir að vera saman.   Telji sig einhver eiga þessa hunda má hafa má samband við skrifstofu Borgarbyggðar í síma 433 7100 eða …

Border Collie tíkur er saknað

Þeir sem hafa séð á vergangi stóra, svarta og hvíta Border Collie tík, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu Borgarbyggðar í síma 433-7100. Hennar hefur verið saknað frá heimili sínu frá því á mánudag. Líklegast er að hún haldi sig einhversstaðar á svæðinu frá Borgarnesi og vestur að Haffjarðará.  

Niðurstaða þjónustukönnunar

Í október – nóvember 2012 vann fyrirtækið Capacent þjónustukönnun meðal íbúa Borgarbyggðar með það að markmiði að kanna ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélagsins. Kannaðir voru ýmsir þættir s.s. hvort íbúar væru ánægðir með Borgarbyggð sem stað til að búa á, hversu ánægðir þeir væru með skipulagsmál og gæði umhverfisins og ýmsa þá þjónustu sem Borgarbyggð er með. Þá var einnig …

Bar-par frumsýnt í Logalandi

Frá Ungmennafélagi Reykdæla: Ungmennafélag Reykdæla frumsýnir 1. mars nk. leikritið Bar-par eftir Jim Cartwright. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson, og er þetta þriðja skiptið í röð sem hann leikstýrir hjá UMFR. Leikendur, sem eru tólf talsins, eru á ýmsum aldri, sá yngsti 10 ára og sá elsti á óræðum aldri. Sumir að taka þátt í sinni fyrstu sýningu, en aðrir hafa …

Ársskýrsla félagsþjónustu Borgarbyggðar 2012

Út er komin ársskýrsla félagsþjónustu Borgarbyggðar. Skýrsluna má nálgast á slóðinni http://www.borgarbyggd.is/starfsemi/felagsthjonusta/ , en þar er einnig að finna skýrslur fyrri ára. Fram kemur að talsverður stígandi er í félagsþjónustunni og aukin eftirspurn eftir þjónustu. Þannig hefur málafjöldi meira en tvöfaldast á síðustu 10 árum, en á síðasta ári kom félagsþjónustan að málefnum 222 einstaklinga/fjölskyldna í félagsþjónustu og barnavernd. Félagsþjónustan …

Stássmeyjarkvæði í Reykholti

Stórtónleikar Tónlistarfélags Borgarfjarðar, Stássmeyjarkvæði, verða í Reykholtskirkju sunnudaginn 3. mars næstkomandi kl. 20.00. Kristín A. Ólafsdóttir þjóðlagasöngkona flytur, ásamt fjölda hljóðfæraleikara, íslensk þjóðlög og þulur í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar. Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson. Hljóðfæraleikararnir sem koma fram með Kristínu: Íris Dögg Gísladóttir fiðla Elín Rún Birgisdóttir fiðla Ásdís Runólfsdóttir víóla Kristín Lárusdóttir selló Gunnar Hrafnsson kontrabassi Berglind Stefánsdóttir flautur …