Lýst og lagað í Borgarnesi

Borgarbyggð vinnur að breikkun götunnar Ánahlíðar en verkið er á framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins árið 2013. Verkið er unnið af Borgarverki ehf. í Borgarnesi. Borgarverk sér jafnframt um lóðarframkvæmdir á svæðinu í tengslum við lóð Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar. Þegar er búið að breikka götuna og malbika en enn á eftir að steypa kantstein og ganga frá umhverfi. Stefnt er að verklokum …

Endurbætur í íþróttamiðstöðinni

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 9. september síðastliðinn að taka tilboði Eiríks Ingólfssonar f.h. EJI ehf. í stækkun og breytingar á þreksalnum í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Tilboð EJI ehf. hljóðaði uppá 18.004.850 kr. en kostnaðaráætlun Umhverfis- og skipulagssviðs var 17.522.550 kr. Áætlað er að verktíminn verði í nóvember og desember og verklok fyrir áramót. Samhliða þessum breytingum verður …

Gjaldfrjáls tannlæknaþjónusta

Í vor var undirritaður samningur milli Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Tannlæknafélags Íslands (TFÍ) um tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára. Hann öðlaðist gildi 15. maí 2013 og gildir til 30. apríl 2019, en hann verður innleiddur í áföngum. Sjá auglýsingu hér. Samkvæmt samningnum eru tannlækningar barna greiddar að fullu af SÍ fyrir utan 2.500 kr. komugjald sem …

Vinaliðaverkefnið innleitt í Borgarnesi

Inga Lára og KristjánÍ síðustu viku var undirrituðu Inga Lára Sigurðardóttir verkefnastjóri í Árskóla í Skagafirði og Kristján Gíslason skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi samning um “Vinaliðaverkefnið”. Nú þegar er búið að innleiða verkefnið, sem er af norskum uppruna, í Skagafirði og er því stýrt þaðan. Samningurinn var undirritaður í Hjálmakletti þegar haldinn var kynningarfundur fyrir starfsmenn þeirra skóla sem ætla …

Umhverfismennt á Kleppjárnsreykjum

Nemendur í 4.-5 . bekk í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum hafa verið að læra um fræ, hvar þau eru að finna og hversu fjölbreytt þau eru í náttúrunni. Krakkarnir hafa farið út og safnað jurtum með það að markmiði að skoða fræin í þeim, skrá heiti þeirra og teikna. Á myndinni má sjá hluta bekkjarins með náttúrulistaverk sem þau gerðu …

Bros – fréttabréf Klettaborgar komið út

Bros – fréttabréf leikskólans Klettaborgar er komið út. Í Brosi má lesa fréttir úr skólanum, sagt er frá vetrarstarfinu, réttarferð, námskeiði fyrir foreldra og fl. Þá er einnig sagt frá því að Klettaborg, sem tilraunaleikskóli hjá Embætti landlæknis vegna handbókar um heilsueflandi leikskóla, mun í vetur leggja áherslu á tannvernd og mataræði. Leikskólinn Ugluklettur mun einnig taka þátt í verkefninu. …

Skráning í skátana – vetrarstarfið að hefjast

Vetrarstarf Skátafélags Borgarness er að hefjast og eins og alltaf verður mikið að gera hjá skátunum í vetur; leikir, útivera og fullt af fjöri. Meðal annars stendur til að fara í félagsútilegu, í vetrarstarfinu verður lögð áhersla á undirbúning fyrir landsmótið næsta sumar og fleira verður til gamans gert. Krakkar eru hvattir til að koma og vera með en skráning …

Sýningar í Safnahúsi opnar allt árið

Vetraropnun á sýningum hefur nú tekið gildi í Safnahúsi og eru þær þá opnar kl. 13.00-16.000 alla virka daga en á öðrum tímum eftir samkomulagi. Opið hefur verið alla daga frá því snemma í vor og er þetta í fyrsta sinn sem sýningar hússins eru með fastan opnunatíma allt árið. Héraðsbókasafnið er eftir sem áður opið alla virka dga frá …

Gróðursetningardagur á Uglukletti

Í síðustu viku var efnt til gróðursetningardags á leikskólanum Uglukletti. Foreldrar voru beðnir um að koma eftirmiðdagsstund til að gróðursetja og fínpússa lóðina fyrir veturinn. Foreldrar og velunnarar leikskólans brugðust vægast sagt vel við, milli 90 og 100 manns mættu og tóku til hendinni. Þar voru á ferð, leikskólabörnin sjálf, foreldrar, systkini, ömmur, starfsfólk og makar. Hópurinn plantaði um 150 …

Tómstundaakstur í vetur

Tómstundaakstur úr uppsveitum hófst um leið og annar skólaakstur nú í ágúst. Ekið verður út skólaárið, alla virka daga óháð því hvort það er skóli eða ekki.     Tímasetningar: Frá Mánudagar Þriðjudagar Miðvikudagar Fimmtudagar Föstudagar Kleppjárnsreykjum 13:45 15:15 15:15 15:15 13:45 Hvanneyri 14:10 15:40 15:40 15:40 14:10 Varmalandi 13:45 15:15 15:15 15:15 13:45 Vetraráætlun Strætó BS hefst 15. september. …