
Aðsókn að Safnahúsi hefur verið mikil í vor og sumar og hafa bæði Börn í 100 ár og Ævintýri fuglanna fengið afar góð ummæli gesta. Sem dæmi um slíkt má nefna þessi orð sem franskur gestur skrifaði í gestabók um Börn í 100 ár: „A walk full of emotion through Icelandic old way of life.“
Báðar sýningarnar eru hannaðar af Snorra Frey Hilmarssyni sem vakið hefur athygli fyrir afar næma og frumlega nálgun við viðfangsefni sín.