Deutsche Grammophon gefur út verk Önnu Þorvaldsdóttur

Anna Þorvaldsdóttir tónskáld er uppalin í Borgarnesi. Hún stundaði tónlistarnám m.a. við Tónlistarskóla Borgarfjarðar, Listaháskóla Íslands og University of California í San Diego. Anna hefur gert samning við Deutsche Grammaphon, en sjaldgæft er að ný tónlist sé gefin út undir því merki. Anna notar engin hljóðfæri þegar hún semur tónlist. Hún teiknar skissur af tónverkunum og handskrifar nóturnar. Anna fékk …

Spilagleði í Logalndi og Edduveröld

Briddsfélag Borgarfjarðar byrjar á ný eftir sumarfrí á mánudag, 29. september. Að vanda verður spilað í Logalandi í Reykholtsdal. Fyrsta kvöldið og næstu mánudagskvöld þar á eftir verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Byrjað er að spila kl. 20.00 og allir eru velkomnir. Þá eru Rússakvöldin að hefjast að nýju í Edduveröld. Fyrsta Rússakvöldið er í kvöld, 24. september, og hefst …

Sveitarstjórn og yfirstjórn LbhÍ hittust á fundi

Gamli skólinn á HvanneyriSveitarstjórn Borgarbyggðar og yfirstjórn Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri hittust nýverið á fundi þar sem farið var yfir stöðu mála hjá skólanum. Sveitarstjórn Borgabyggðar óskaði eftir fundinum vegna frétta um uppsagnir á 10 starfsmönnum skólans og þá niðurskurðarkröfu sem birtist í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2015. Yfirstjórn skólans brást fljótt við og aðilar voru sammála um að nýta tækifærið …

Íbúafundur um málefni Bæjarsveitar

Boðað er til íbúafundar með íbúum Bæjarsveitar þar sem ýmis málefni sem varða Bæjarsveit verða til umræðu. Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu Brún þann 29. september og hefst hann kl. 20:30.   Íbúum Bæjarsveitar hefur verið send með póstinum auglýsing um íbúafundinn og efni hans.  

Björn Bjarki og Guðveig í stjórn SSV

Fulltrúar Borgarbyggðar á fundinum, Magnús Smári, Ragnar Frank, Jónína Erna, Sigríður, Helgi Haukur,Björn Bjarki og Kolfinna. Á framhaldsaðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem haldinn var í Búðardal þann 18. sept síðastliðinn voru Guðveig Eyglóardóttir og Björn Bjarki Þorsteinsson kosin í stjórn Samtakanna fyrir hönd Borgarbyggðar. Varamenn þeirra eru þau Magnús Smári Snorrason og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir. Á fundinum voru samþykktar …

Jóga í Uglukletti og Klettaborg

Jóga er nú stundað af miklum móð í leikskólunum Uglukletti og Klettaborg. Í leikskólunum eru öll tækifæri nýtt til þess að efla börnin (og starfsfólkið líka), andlega og líkamlega. Jóga hefur orðið fyrir valinu sem einn liður í því. Í jóga þjálfa krakkarnir meðal annars liðleika, styrk, jafnvægi, samhæfingu og samvinnu auk þess sem leitast er við að finna innri …

Ljósastaurar komnir við Árberg

Lokið hefur verið við uppsetningu ljósastaura við Árberg í Reykholtsdal. Settir voru þrír staurar frá Árbergsgötunni að þjóðvegi en göngustígur liggur þaðan, meðfram þjóðvegi í gegnum Kleppjárnsreykjahverfi. Nokkrir nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum ganga frá Árbergi í skólann og mun nú öryggi þeirra og annarra gangandi vegfarenda aukast til muna. Starfsmenn Rarik sáu um uppsetningu stauranna en Einar S. Traustason …

Björgun sels

Sel var giftursamlega bjargað, af Margréti Katrínu Guðnadóttur dýrlalækni, fimm meðlimum Björgunarsveitarinnar Brák og HSS verktak, úr sjálfheldu í dag eftir sólarhringsdvöl í Borgarvogi. Hann var dreginn að landi og þá fluttur með gröfu gegnum Borgarnes til sjávar við enda Brákareyjar. Þar var honum gefinn fiskur sem hann reyndar fúlsaði við. Hann synti síðan með hraði út á haf og …