Tímabundin lokun á hjáleið

Tilkynning frá framkvæmdasviði. Að ósk lögreglunnar verður hjáleið inn á Kveldúlfgsgötu frá Þórðargötu lokuð þar til framkvæmdir við gatnagerðina hefjast á nýjan leik.  

Upphaf aðventu í Borgarbyggð

Upphaf aðventu í Borgarbyggð sunnudaginn 27. nóvember 2016 Ljós og náttúra Vesturlands – Sýning í Safnahúsi opnuð kl.15.00 Jón R. Hilmarsson sýnir ljósmyndir sem hann hefur tekið á Vesturlandi. Við opnunina mun Alexandra Chernyshova koma fram og boðið verður upp á veitingar. Jólaljósin tendruð á Kveldúlfsvelli kl. 17.00 Ljósin verða tendruð á jólatré Borgarbyggðar við Kveldúlfsvöll. Þar mun Geirlaug Jóhannsdóttir …

Íbúafundur um verndarsvæðið í Andakíl

Íbúafundur um verndarsvæðið í Andakíl miðvikudaginn 30. nóvember 2016 kl 20:00  í Ásgarði, húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands Umhverfisstofnun boðar til kynningar- og samráðsfundar um stjórnunar- og verndaráætlun  fyrir búsvæði fugla í Andakíl. Á fundinum verður sagt frá gerð stjórnunar- og verndaráætlana almennt og áætlun fyrir verndarsvæðið í Andakíl sérstaklega en unnið er að gerð hennar um þessar mundir. Í kjölfarið verður …

Málþing um framtíð ferðaþjónustu í Borgarbyggð

Málþing um framtíð ferðaþjónustu í Borgarbyggð verður haldið í Hjálmakletti miðvikudaginn 23. nóvember kl. 18:00 – 22:00. Framsöguerindi frá kl. 18:00 til 19:30: Setning málþingsins; Guðveig Eyglóardóttir formaður starfshóps um ferðamál í Borgarbyggð Fjárhagsleg tengsl ferðaþjónustu og Borgarbyggðar; Vífill Karlsson atvinnuráðgjafi hjá SSV Framtíðarsýn ferðaþjónustu í Borgarbyggð; Guðveig Eyglóardóttir hótelstýra Bifröst og formaður starfshóps um ferðamál í Borgarbyggð Skipulagsvinna og …

Borgnesingur í hættu! Upplestur í Safnahúsi

Miðvikudaginn 23. nóvember verður upplestur á nýrri bók í héraðsbókasafni Borgarfjarðar í Safnahúsi.  Þar kynnir Hildur Sif Thorarensen sína fyrstu bók sem heitir Einfari. Hildur er 32ja ára hugbúnaðarverkfræðingur sem nú leggur stund á nám í læknisfræði í Osló. Á meðan á verkfræðináminu stóð tók hún nokkra áfanga í ritlist og námskeið í skrifum á kvikmyndahandritum, þá hefur hún starfað …

Dagur nýsköpunar

DAGUR NÝSKÖPUNAR Á VESTURLANDI  verður haldinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi  miðvikudaginn 23. nóvember og hefst dagskrá kl. 13.30 UPPBYGGINGARSJÓÐUR VESTURLANDS  mun úthluta styrkjum til nýsköpunar í atvinnulífi,  en sjóðurinn úthlutar styrkjum til nýsköpunar tvisvar sinnum á ári og er þetta seinni úthlutun þessa árs. BJARNI MÁR GYLFASON frá Samtökum iðnaðarins og ODDUR STURLUSON frá Icelandic startup flytja erindi um nýsköpun. …

Kennarar – afhending undirskriftalista

Kennarar grunnskólanna í Borgarbyggð fjölmenntu í Ráðhús Borgarbyggðar í gær, þann 15.nóv. og afhentu Gunnlaugi A. Júlíussyni sveitarstjóra bréf og undirskriftir til áréttingar því að lokið verði við gerð kjarasamninga við kennara en samningar þeirra hafa verið lausir um allnokkra hríð og lítt hefur gengið að semja.

Afhending örnefnaskrár

Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum, FaB, afhenti þann 9. nóvember Landmælingum Íslands örnefnaskrá sem félagið hefur af mikilli elju safnað saman á s.l. 23 árum. Skráin inniheldur örnefni úr Skorradalshreppi og öllum hreppum gömlu Borgarfjarðarsveitar . Ekki þarf að efast um að hér hefur félagið unnið þrekvirki og bjargað ómetanlegri þekkingu frá glötun.  Einnig afhenti félagið Safnahúsi Borgarfjarðar afrit af örnefnaskrám og kortum …

Opinn fundur um þjóðlendumál

Föstudaginn 30. september sl. felldi Óbyggðanefnd úrskurð sinn í umfjöllun um þjóðlendumál innan Borgarbyggðar. Miðvikudaginn 16. nóvember n.k. kl. 20:00 verður haldinn fundur í Hjálmakletti um niðurstöður nefndarinnar. Til fundarins mætir Friðbjörn Garðarsson lögmaður sem fór með þann hluta málsins fyrir Borgarbyggð sem varðar svæði 1/2014 (land milli Hítarvatns og Fossdalsár í Mýrasýslu). Einnig mæta Ingi Tryggvason hrl. og Óðinn …