Fjárhagur Borgarbyggðar

Greiningardeild Arionbanka hefur frá árinu 2011 tekið saman skýrslu um fjárhagslegar niðurstöður ársreikninga þeirra íslensku sveitarfélaga sem hafa yfir 1.500 íbúa. Á síðasta ári voru það 28 sveitarfélög sem höfðu yfir 1.500 íbúa af þeim 74 sem eru í landinu. Fulltrúar Arionbanka héldu nýlega fund með forsvarsmönnum Borgarbyggðar um þær niðurstöður sem snúa að sveitarfélaginu. Unnið er með niðurstöður úr …

Ungir lesendur fá hvatningu frá héraðsbókasafninu

Skyldur héraðsbókasafns eru margvíslegar og sumar einkar skemmtilegar. Síðastliðinn föstudag fór Sævar ingi Jónsson héraðsbókavörður í leikskólann Klettaborg í Borgarnesi til að afhenda þar lánþegaskírteini  til ungra lesenda.  Tilefnið var dagur læsis og bókasafnsdagurinn 8. september.  Héraðsbókasafnið hefur um nokkurt skeið afhent leikskólabörnum lánþegaskírteini með formlegum hætti.  Þess má einnig geta að síðastliðin tíu ár hefur einnig verið farið með …

Lýðheilsuganga í Einkunnum

Alla miðvikudaga í september mun UMSB í samstarfi við Ferðafélag Íslands standa fyrir lýðheilsugöngum í Borgarbyggð. Göngurnar eru hluti af afmælisdagskrá FÍ en félagið fagnar 90 ára afmæli á árinu. Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka  u.þ.b. 60-90 mín. Tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og …

Upplýsinga- og lýðræðisnefnd Borgarbyggðar

Upplýsinga- og lýðræðisnefnd Borgarbyggðar Til að styrkja þróun og stöðu upplýsingamála hjá Borgarbyggð og efla enn frekar lýðræðislega umræðu meðal íbúa sveitarfélagsins hefur sveitarstjórn Borgarbyggðar stofnað nefnd sem skal móta stefnu í upplýsinga- og lýðræðismálum sveitarfélagsins. Nefndin mun starfa til loka kjörtímabilsins. Nefndin er skipuð einum fulltrúa frá hverju framboði sem á fulltrúa í sveitarstjórn og mannauðsstjóri Borgarbyggðar vinnur með …

Menntaskóli Borgarfjarðar 10 ára.

Í dag, föstudaginn 8. september, býður Menntaskóli Borgarfjarðar velunnurum til afmælisfagnaðar í tilefni 10 ára afmælis. Hefst afmælishátíðin kl. 14 og er  boðið upp á léttar veitingar að henni lokinni. Skólinn væntir þess að sem flestir sjái sér fært að mæta í tilefni þessara tímamóta í sögu skólans.

Tónlistarskóli Borgarfjarðar 50 ára.

Fimmtudaginn 7. september næstkomandi verða 50 ár liðin frá stofnun Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Tónlistarfélag Borgarfjarðar hafði forgöngu að stofnun skólans. Haldið verður upp á daginn með opnu húsi á sjálfan afmælisdaginn. Skólinn mun bjóða upp á hádegissnarl í skólanum, Borgarbraut 23, Borgarnesi, kl. 12:00. Einnig er gestum  velkomið að fylgjast með kennslu allan daginn. Dagskrá afmælisdagsins endar á tónleikum í Borgarneskirkju …

Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Óðal

Með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Óðal er verið mæta þörfum unglinga í Borgarbyggð fyrir fjölbreytt frítímastarf og samveru með jafnöldrum sínum. Félagsmiðstöðin er því mikilvægur vettvangur fyrir unglinga og felur starf hennar í sér mikið forvarnar-, afþreyingar- og menntunargildi. Rútuferðir eru c.a tvisvar í mánuði til og frá Mýrunum, Bifröst, Varmalandi, Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri á viðburði félagsmiðstöðvarinnar og opin hús. Félagsmiðstöðin Óðal …

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands og UMSB

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands og UMSB Gengið er alla miðvikudaga í september. Göngurnar eru í 60-90 mínútur og  fyrir alla aldurshópa. Kostar ekkert að ganga með, bara mæta klædd eftir veðri. 6.september kl.18 Gengið um útivistarsvæðið Einkunnir, Björk Jóhannsdóttir leiðir hópinn áfram. Lagt verður af stað frá bílastæðinu við Einkunnir kl.18. …

Starf innheimtufulltrúa Borgarbyggðar

Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf innheimtufulltrúa. Starfshlutfall er 100% og brýnt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst   Verkefni og ábyrgðarsvið: Ábyrgð á útgáfu og útsendingu reikninga Umsjón með innheimtuaðgerðum og útsendingu innheimtubréfa Álagning fasteignagjalda Móttaka og símsvörun þegar þörf er á Almenn skrifstofustörf og tilfallandi verkefni   Menntunar- og hæfniskröfur: Stúdentspróf Reynsla sem nýtist í starfi …

Mikil uppbygging í Borgarbyggð

Borgarbyggð er öflugt samfélag með þróttmiklu atvinnulífi. Það er eitt víðfeðmasta sveitarfélag landsins sem býr yfir miklum tækifærum á ýmsa lund. Mikil uppbygging hefur verið í héraðinu undanfarin misseri og mikið er framundan. Framkvæmdahugur er mikill bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Því er og hefur verið mikill annatími í skipulags- og byggingarmálum í sveitarfélaginu. Ekki er útlit fyrir annað en …