Barnapakki Borgarbyggðar var afhentur í fyrsta sinn við smá athöfn á Heilsugæslunni í Borgarnesi miðvikudaginn 13. febrúar. Drengur, sem fæddist 2. janúar síðastliðinn, og var býbúinn að fara í gegnum sex vikna skoðun ásamt foreldrum sínum, þeim Ástrúnu Kolbeinsdóttur og Arnóri Orra Einarssyni, fékk afhentan fyrsta barnapakkann. Bakhjarlar þessa verkefnis eru Kaupfélag Borgfirðinga, Samkaup / Nettó, Lyfja, Borgarbyggð, Aldan – …
Forsætisráðherra í heimsókn
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti ráðhús Borgarbyggðar miðvikudaginn 13. Febrúar, í ferð sinni um Vesturland. Með henni í för voru Bjarni Jónsson varaþingmaður VG og Lísa Kristjánsdóttir aðstoðarmaður ráðherra. Forsætisráðherra fundaði með sveitarstjórn Borgarbyggðar um málefni sveitarfélagsins. Farið var yfir fjölmörg mál s.s. samgöngumál, atvinnumál, þróun ferðaþjónustunnar, húsnæðismál, framkvæmdir sveitarfélagsins, fjárhagslega stöðu þess og helstu áherslur inn í framtíðina. Það er …
Iðunnarstaðir í Lundarreykjadal – kynning.
Miðvikudaginn 20. febrúar 2019 milli kl 17:00 og 18:00 verða starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi þar sem tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir Iðunnarstaði í Lundarreykjadal verður kynnt sérstaklega þeim sem þess óska. sjá nánar: Iðunnarstaðir i Lundarreykjardal – Hótel og Tjaldsvæði – breyting aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022
Eldvarnargetraun
Ísak Kári, nemandi í þriðja bekk Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri var á dögunum dreginn út sem vinningshafi í eldvarnagetraun Landsambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðsmenn fara í aðdraganda jólaföstu í heimsókn til allra nemenda í þriðja bekk í grunnskólum landsins þar sem þeir ræða við börnin um hættuna af eldinum og varnir og viðbrögð ef hætta steðjar að. Börnin fá í hendur …
Námskeið – Byggingargátt
Námskeið fyrir iðnmeistara og byggingarstjóra sem þurfa að tengjast rafrænni byggingargátt Mannvirkjastofnunar. Haldið í húsnæði Símenntunar Vesturlands að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi. – sjá nánar á mynd.
Borgarbyggð sýknuð af bótakröfu Húss & Lóða.
Héraðsdómur Vesturlands felldi dóm í máli Húss & Lóða gegn Borgarbyggð mánudaginn 11. Febrúar. Stefnandi, Hús & Lóðir, gerði kröfu um að viðurkennd væri bótaskylda Borgarbyggðar vegna seinkunar framkvæmda við Borgarbraut 57 og 59. Héraðsdómur vísaði frá kröfu stefnanda um að viðurkennd væri bótaskylda Borgarbyggðar. Stefndi, Borgarbyggð, er að öðru leyti sýkn af kröfum stefnanda í málinu skv. dómsorðum Héraðsdóms …
180. fundur sveitarstjórnar
SVEITARSTJÓRN BORGARBYGGÐAR FUNDARBOÐ 180. FUNDUR Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 14. febrúar 2019 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 10.1. (179) Fundargerðir byggðarráðs 17.1, 24.1.,31.1., 7.2. (476, 477, 478, 479) Fundargerð fræðslunefndar 17.1. (176) Fundargerð umhverfis – skipulags – og landb.n. 1.2. 13.2. …
Leiðbeinandi í dósamóttöku Öldunnar í Borgarnesi.
Laust er til umsóknar 50% starf leiðbeinanda í dósamóttöku Öldunnar, verndaðs vinnustaðar í Borgarnesi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á málefnum fatlaðra. Aldan starfar samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Þar er komið til móts við þörf fatlaðs fólks á dagþjónustu, vinnu og hæfingu. Við leitum …
Byggingarmál
Byggingarmál – hvaða framkvæmdir teljast byggingarleyfisskyldar? Undanfarið hafa óhefðbundnar húsnæðislausnir verið talsvert áberandi í umræðunni, t.a.m. gestahús, lítil hús á lóð og einnig svokölluð smáhýsi. Fyrir þá sem lítið þekkja til getur verið snúið að átta sig á hvort framkvæmdir sem þessar krefjist byggingarleyfis eða ekki – og hvort þær séu yfirhöfuð leyfðar í skipulagi. Við bendum fólki í framkvæmdahug …
Dagur leikskólans
Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins 6. Febrúar sl. Þetta er í tólfta skipti sem haldið er upp á daginn en 6. febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Tilgangur Dags leikskólans er að vekja athygli á hlutverki leikskóla og starfi leikskólakennara. Samstarfsaðilar um Dag leikskólans …