Sóknaráætlun Vesturlands 2015-2019

mars 16, 2015
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir kynningarfundi um Sóknaráætlun Vesturlands að Bjarnabraut 8 í Borgarnesi miðvikudaginn 18 mars kl.20.00. Á fundinum verður kynnt ný Sóknaráætlun Vesturlands. Í tengslum við sóknaráætlun þarf að móta framtíðarsýn fyrir Vesturland, skilgreina átaksverkefni og stofna Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Sjóðurinn mun úthluta styrkjum til nýsköpunar í atvinnulífi og menningarmála og kemur í stað Vaxtarsamnings Vesturlands og Menningarsamnings Vesturlands.
Allir velkomnir
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
 
 

Share: