Nýverið tilkynnti Ferðamálastofa hverjir hljóta styrk til úrbóta á ferðamannastöðum, þetta árið. Alls voru veittar ríflega 54 milj. kr. og fengu þrjú verkefni í Borgarbyggð, myndarlegan stuðning. Sveitarfélagið Borgarbyggð fær 2,5 milj. kr. til að bæta stíga og aðra aðstöðu á og við Grábrók, en svæðið hefur látið verulega á sjá, á undanförnum árum. Hreðavatn ehf. fær 3 milj. kr. …
Úrslitakeppnin hefst í kvöld – Bein útsending frá FM Óðal
Úrslitakeppni hefst í kvöld í Grindavík en þangað fara menn til að freista þess að ná sigri á sterku liði grindvíkinga. Þeir sem ekki komast á leikinn í kvöld geta hlustað á lýsingu á honum í beinni útsendingu á FM Óðal 101,3 þar sem íþróttafréttamenn Óðals lýsa leiknum heim. Heimaleikurinn okkar við Grindavík verður svo á sunnudaginn kl. 19.15 í …
Hunda- og kattahreinsun á Bifröst
Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður á Birfröst miðvikudaginn 2. apríl 2008 kl. 16:00 – 18:00 í kyndistöðinni. Þeir eigendur hunda og katta á Bifröst sem ekki mæta með dýr sín til þessarar hunda- og kattahreinsunar eru beðnir um að skila vottorði á skrifstofu ráðhúss Borgarbyggðar um að dýr þeirra hafi verið hreinsuð annars staðar. Samkvæmt hollustuháttarreglugerð nr. 941/2002, 15. kafla, …
,,Ég verð alltaf svangur þegar ég sé Borgarnes“
Það er lögreglumaðurinn Gunnar, sem Ólafur Darri Ólafsson leikur, í þættinum Mannaveiðum sem lætur eftirfarandi orð falla við félaga sinn Birki þegar hann sér Borgarnes. ,,Ég verð alltaf svangur þegar ég sé Borgarnes“. Þeir félagar eru að koma niður á Seleyrina og nálgast Borgarnes og það veldur þessari hungurtilfinningu hjá Gunnari sem verður til þess að þeir stoppa í Hyrnunni …
Almenningssamgöngur milli Reykjavíkur og Borgarness
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur tekið upp viðræður við Strætó bs um strætisvagnasamgöngur milli Reykjavíkur og Borgarness. Vonast er til að niðurstöður viðræðna liggi fyrir í apríl mánuði. Ljóst er að vaxandi þörf er fyrir bættum almenningssamgöngum milli höfuðborgarinnar og Borgarbyggðar þar sem þeim fer fjölgandi sem sækja vinnu og nám annarsvegar frá Borgarbyggð til höfuðborgarsvæðisins og hinsvegar frá höfuðborgarsvæðinu til þéttbýlisstaða …
Starfsfólk Óðals í heimsókn á Akranesi
Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar Óðals í Borgarnesi heimsóttu félagsmiðstöðina Arnardal á Akranesi í vikunni til að funda um félagsmiðstöðvar, ungmennahús og vinnuskóla sveitarfélaganna, en gott samstarf hefur verið um langt skeið hjá þessum tveimur félagsmiðstöðvum. Við þetta tækifæri skoðuðu starfsmenn Óðals einnig nýju aðstöðuna sem Arnadalur hefur fengið. Á myndinni eru þau Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri æskulýðs- og forvarnarmála á Akranesi, Hanna Sigríður …
Laus eru til umsóknar sumar- og afleysingarstörf 2008 hjá Borgarbyggð
Borgarbyggð auglýsir eftir starfsmönnum til sumar- og afleysingarstarfa við íþróttamiðstöðvarnar í Borgarnesi, á Varmalandi og Kleppjárnsreykjum. Einnig er auglýst eftir flokkstjórum við vinnuskólann. Umsóknarfrestur er til 18. apríl 2008. Sjá hér auglýsingu um þessi störf. Einnig má nálgast upplýsingar um fleiri störf sem eru í boði hjá Borgarbyggð undir vefsíðunni ,,störf í boði„.
Svæðalandvarsla á friðlýstum svæðum í Borgarbyggð
Umhverfisstofnun hefur auglýst laus störf við landvörslu sumarið 2008 og er nú einnig auglýst eftir landverði í fullt starf til að fylgjast með friðlýstum svæðum á Vesturlandi. Um tilraunaverkefni er að ræða. Í auglýsingu um starfið á heimasíðu Umhverfisstofnunar kemur m.a. fram að starfið felist í að fylgjast með að á hinum friðlýstu svæðum séu ekki brotin ákvæði friðlýsingar og …
Fyrsta árshátíð nemenda Menntaskóla Borgarfjarðar
Árshátíð nemenda Menntaskóla Borgarfjarðar var haldin fimmtudagskvöldið 13. mars 2008 í félagsaðstöðu hestamanna í Vindási. Húsið var skreytt hátt og lágt og mættu nemendur, kennarar og gestir í glæsilegum síðkjólum og jakkafötum í veisluna. Nemendur höfðu notið aðstoðar foreldra sinna við allan undirbúning veislunnar. Listakokkurinn Rúnar Marvinsson sá um að töfra fram réttina sem fram voru bornir. Veislustjóri var Gísli …
Opnunartími íþróttamiðstöðva Borgarbyggðar um páskahátíðina
Opnunartími íþróttamiðstöðva Borgarbyggðar í Borgarnesi, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi um páskana er sem hér segir í eftirfarandi auglýsingu um opnunartíma íþróttamiðstöðvanna. Sjá hér.