Hreinsun rotþróa í Borgarbyggð

Nú um þessar mundir er að hefjast aftur vinna við rotþróarhreinsun í Borgarbyggð en eftir útboð á sl. ári var samið við nýjan verktaka, Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands ehf, um losun rotþróa í sveitarfélaginu og gildir samningurinn til ársins 2012. Samningurinn miðar við að hver rotþró sé tæmd tvisvar á samningstímabilinu og eiga að líða sem næst 3 ár á …

Hjólað í vinnuna um allt land

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana í Borgarbyggð eru hvattir til að taka þátt í vinnustaðakeppni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands ,,Hjólað í vinnuna„. Átakið stendur yfir í rúmar tvær vikur, frá 7. – 23. maí 2008. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Fylgjast má með átaksverkefninu á vef ÍSÍ.  

Forvarnarbolum dreift til unglinga í Borgarbyggð

Nemendur í 7. – 10. bekk í Grunnskólum Borgarbyggðar hafa nú fengið gefins boli með ýmiss konar forvarnarslagorðum. Það er „Samráðshópur um forvarnir í Borgarbyggð“ sem gefur bolina sem er ætlað að fá unglinga og foreldra þeirra til að hugsa um mikilvægi jákvæðs lífstíls og vekja umræður um þessi mál á heimilinu. Slagorðin á bolunum eru samin af Hjördísi Hjartardóttur …

Það er allt annað að sjá þig Borgarnes!

Laugardaginn 3. apríl var almennur hreinsunardagur haldinn í Borgarnesi. Það voru starfsmenn hjá HS verktak sem fóru um bæinn og sóttu þann garðaúrgang sem safnast hafði hjá íbúum. Götur í Borgarnesi hafa verið sópaðar eftir veturinn. Hópar unglinga hafa verið fengnir til að tína rusl á opnum svæðum í Borgarnesi og fjöldi íbúa Borgarness hefur þegið þjónustu og góð ráð …

Svartur og hvítur kettlingur í óskilum hjá gæludýraeftirlitsmanni

Gæludýraeftirlitsmaður Borgarbyggðar handsamaði svartan og hvítan kettling í heimahúsi við Böðvarsgötuna í Borgarnesi sunnudagskvöldið 4. maí. Kötturinn er ómerktur og ekki á skrá hjá Borgarbyggð. Eigandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Sigurð Halldórsson gæladýraeftirlitsmann í síma 8681926 eða 4351415. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Borgarbyggðar í síma 4337100 á opnunartíma ráðhússins. Ef einhver lesandi heimasíðunnar …

Lóðahreinsunardagur í Borgarnesi

Nú stendur yfir hreinsunarátak í Borgarbyggð. Fyrsta sópun sumarsins á gangstéttum og götum er langt komin og búið að hreinsa öll opin svæði á Hvanneyri auk flestra lóða. Einnig hefur drjúgur hluti opinna svæða í Borgarnesi verið hreinsaður eftir veturinn. Laugardaginn 3. maí er lóðahreinsunardagur í Borgarnesi. Þá verður garðaúrgangur hirtur við heimili íbúa í Borgarnesi og einnig verður garðaúrgangi …

Hundahlýðninámskeið í Borgarnesi

Hundaskólinn ,,Hundalíf“ heldur hvolpa og grunnnámskeið í Borgarnesi dagana 3-4 maí 2008. Sjá hér auglýsingu um námskeiðið. Minnt er á að helmingsafsláttur er á hundaleyfisgjöldum hjá Borgarbyggð ef eigendur hafa farið með hunda sína á hlýðninámskeið hjá viðurkenndum hundaskóla. Frekari upplýsingar eru hér á heimasíðu Borgarbyggðar. Hundaeigendur er hvattir til að sækja svona námskeið og skila inn vottorði á skrifstofu …

Opinn íbúafundur á Hvanneyri

Í kvöld, þriðjudaginn 29. apríl, kl. 20:00 verður haldinn opinn íbúafundur í Ásgarði á Hvanneyri. Þar verður m.a. farið yfir: • Framtíðarsýn LBHI • Skipulagsmál • Framkvæmdir og viðhald • Fráveitumál • Þjónustumál, verslun og bensínafgreiðsla. Fundarstjóri verður Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar. Sjá hér auglýsinguna. Mynd: Björg Gunnarsdóttir