Nemendur í 7. – 10. bekk í Grunnskólum Borgarbyggðar hafa nú fengið gefins boli með ýmiss konar forvarnarslagorðum.  Það er „Samráðshópur um forvarnir í Borgarbyggð“ sem gefur bolina sem er ætlað að fá unglinga og foreldra þeirra til að hugsa um mikilvægi jákvæðs lífstíls og vekja umræður um þessi mál á heimilinu.  Slagorðin á bolunum eru samin af Hjördísi Hjartardóttur félagsmálastjóra og Indriða Jósafatssyni íþrótta-og æskulýðsfulltrúa. Fleiri myndir má sjá á heimasíðu Óðals www.odal.borgarbyggd.is
Myndir: Hanna Kjartansdóttir