Á síðustu dögum hafa staðið yfir nokkrar endurbætur á félagsheimilinu Lyngbrekku. Um er að ræða lagfæringar á hita- og rafmagnsmálum í húsinu og var það Glitnir ehf í Borgarnesi sem vann verkið. Meðal þess sem gert hefur verið er að settir voru nýir hitablásarar í salinn, gerðar endurbætur á lýsingu og rafmagnstenglar lagfærðir. Þá hefur rafmagnstenglum verið bætt við á sviðinu og lýsing þar verið aukin.Bygging félagsheimilisins Lyngbrekku hófst árið 1959, en það var vígt fullklárað árið 1967. Húsið er skv. landskrá fasteigna um 433 m2, er að helmingi til í eigu Borgarbyggðar og sinn hvor fjórðungshlutinn er í eigu ungmennafélaganna Björns Hítdælakappa og Egils Skallagrímssonar.