Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 2026

Kjörskrá vegna sameiginlegra sveitarstjórnarkosninga Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem fer fram þann 16. maí 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2. Athugasemdir við kjörskrá skal senda beint til Þjóðskrár. Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá hér Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á …

Stóri plokkdagurinn og upphaf mannræktarviku

Stóri plokkdagurinn fer fram næsta sunnudag og eru íbúar hvattir til að taka þátt og plokka í sínu nærumhverfi. Sama dag hefst einnig Mannræktarvika í Borgarbyggð, sem stendur frá 26. apríl til 3. maí. Markmið vikunnar er að efla samkennd, jákvæðni, gleði og virðingu í samfélaginu og hvetja okkur til að sýna hvert öðru hlýju í daglegu lífi. Félagar í …

Mannræktarvika Borgarbyggðar 26. apríl – 3. maí

Dagana 26. apríl – 3. maí verður haldin Mannræktarvika í Borgarbyggð. Markmið vikunnar er að efla samkennd, jákvæðni, gleði og virðingu í samfélaginu okkar og hvetja til þess að við sýnum hvert öðru hlýju í daglegu lífi. Hugmyndin er einföld en getur verið áhrifarík: að framkvæma lítil góðverk sem styrkja samfélagið – og það þarf ekki að kosta neitt. Með …

Vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026

Frétt af vef Markaðsstofu Vesturlands: Almyrkvi á sólu verður 12. ágúst 2026 og mun sjást frá öllum sveitarfélögum á Vesturlandi – þó mislengi eftir svæðum. Gera má ráð fyrir verulegri aukningu gesta og mikilli umferð á svæðinu, bæði á sólmyrkvadaginn og dagana fyrir og eftir atburðinn. Undirbúningur vegna þessa atburðar er í gangi í samstarfi sveitarfélaga, viðbragðsaðila og annarra hagaðila. …

Söfnun á rúlluplasti að hefjast aftur

Næsta söfnun á rúlluplasti stendur þessa vikuna 20. apríl-25. apríl og fram í næstu viku. Samkvæmt fyrirkomulagi er byrjað að safna vestast á Mýrunum, Hraunhreppi og Kolbeinsstaðarhreppi, að því loknu er safnað upp í Norðurárdal og tökum svo dalina koll af kolli niður að Andakíl. Við viljum minna á að rúlluplastið þarf að vera í böggum: hvítt sér, svart sér …

Ragnar Heiðar nýr umsjónarmaður Hjálmakletts

Ragnar Heiðar Sigtryggsson hefur verið ráðinn sem umsjónarmaður Hjálmakletts. Ragnar er með B.cs í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði og hefur tekið að sér að útbúa kynningarefni fyrir hin ýmsu fyrirtæki. Þá starfaði hann á fjármála- og stjórnýslusviði hjá Ísafjarðarbæ á árunum 2016 – 2019 og hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga á árunum 2019-2022. Ragnar hefur töluverða reynslu af viðburðastjórnun og rekstri …

Íbúakönnun um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps

Ráðgefandi Íbúakönnun um nafn á sameinuðu sveitarfélagi hófst í dag, 15. apríl, og stendur til og með 27. apríl. Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélögunum Borgarbyggð og Skorradalshreppi, 16 ára og eldri geta tekið þátt í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar. Til að komast þar inn þarftu rafræn skilríki. Smelltu hér til að fara í þjónustugáttina. Þrír möguleikar Valið er á milli …

276. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

276. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar fer fram í Hjálmakletti, fimmtudaginn, 16. apríl nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 276. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.

Barnamenningarhátíðin BARNÓ– BEST MEST VEST 2026

Langar þig að hafa áhrif og skapa eitthvað skemmtilegt?Leitað er að hressum og hugmyndaríkum krökkum á Vesturlandi í stýrihóp Barnó – BEST MEST VEST sem fer fram í október. Í stýrihópnum færð þú að taka þátt í að móta hátíðina, koma með hugmyndir, hafa áhrif og skapa skemmtilega upplifun fyrir önnur börn Þetta er frábært tækifæri til að láta rödd …