Ungmenni í Borgarbyggð móta útlit og nafn á nýjum stafrænum starfsmanni sveitarfélagsins

Lilja Björg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Viktor Ingi, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála heimsóttu nýverið ungmenni í Borgarbyggð þar sem þau kynntu Borgarbyggð, þau verkefni sem sveitarfélagið sinnir, stjórnsýslu og stafræna vegferð sveitarfélagsins. Meginástæða heimsóknanna var að kynna hugmyndasamkeppni meðal ungmenna sveitarfélagsins um nafn og útlit á nýjum starfsmanni Borgarbyggðar sem tekinn var til starfa á síðasta ári. Starfsmaðurinn sem …

Útboð vegna viðbyggingar á leikskólanum Uglukletti

EFLA, fyrir hönd Borgarbyggðar óskar eftir tilboðum í byggingu á 845 m² leikskólahúsnæði við Ugluklett í Borgarnesi. Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 3. febrúar 2026. Verklok framkvæmda eru 31. ágúst 2027. Helstu magntölur Rif og förgun, rif á útveggjaklæðningu 108 m², rif á inniveggjum 36 m², rif á loftaefni 112 m², rif á gólfefnum 112 m². Uppgröftur 2830 …

Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð

Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2026. Álagningarseðlar eru á Mínar síður – Pósthólf á island.is Álagningarseðlar hafa verið sendir í pósti til fasteignaeigenda sem eru 78 ára og eldri. Nánari upplýsingar um gjaldskrár eru á heimasíðu Borgarbyggðar, borgarbyggd.is, þeir sem þess óska geta haft samband við skrifstofu Borgarbyggðar og fengið senda álagningarseðla á pappír. Gjalddagar eru tíu, sá …

Framkvæmdir og sprengingar við Birkiklett

Í næstu viku hefjast sprengingar við Birkiklett í Borgarnesi. Áætlað er að sprengingar hefjast mánudaginn 2. febrúar næstkomandi. Sprengt verður kl. 11:30 og/eða 15:30 daglega. Íbúar og ferðamenn eru beðnir um að fylgja reglum og virða lokun svæðisins á meðan sprengingum stendur. Framkvæmdaraðilar og Borgarbyggð þakka skilning á þeim óþægindum sem framkvæmdunum kann að fylgja

Ungmennaþing ungmennaráðs Borgarbyggðar

Ungmennaþing ungmennaráðs Borgarbyggðar verður haldið laugardaginn 31. janúar næstkomandi.Þingið fer fram í Grunnskólanum í Borgarnesi og frá klukkan 14:00 til kl. 17:00. Að þingi loknu verður haldið slútt í félagsmiðstöðinni Óðal þar sem boðið verður upp á veitingar og mikla gleði. Athugið að ungmennaþingið er ætlað ungmennum í 7. bekk og upp í 22 ára aldur.         …

Rafmagnslaust frá Tungulæk að Fíflholti og frá Rauðkollsstöðum að Fíflholti þann 22.1.2026

Vegna vinnu við niðurrif á eldra dreifikerfi verður rafmagnslaust frá Tungulæk að Fíflholti frá kl. 9:30 til kl. 10:30 þann 22.1.2026. Einnig verður rafmagnslaust frá Rauðkollsstöðum að Fíflholti frá kl.13:00 til 14:00 sama dag (22.1.2026) Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má …

Sigurður Kristjánsson ráðinn fjármálastjóri Borgarbyggðar

Sigurður Kristjánsson hefur tekið við stöðu fjármálastjóra Borgarbyggðar en hann hóf störf í dag, 20. janúar. Sigurður er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og býr yfir yfirgripsmikilli reynslu af fjármálastýringu. Hann starfaði sem fjármálastjóri Lyfju á árunum 2000–2024 og hefur þar með áratuga reynslu af fjármálum og rekstri stórra fyrirtækja. Undanfarin misseri starfaði hann jafnframt sem sviðsstjóri …

Klippikort vegna gámastöðvar

Einstaklingar sem þurfa klippikort vegna gámastöðvar í janúar en hafa ekki þegar sótt þau eru beðnir um að hafa samband við Borgarbyggð í síma 433-7100 eða á borgarbyggd@borgarbyggd.is. Einnig er hægt að koma í Ráðhús Borgarbyggðar að Digranesgötu 2. Frá og með 1. febrúar 2026 verður svo hægt að nálgast klippikort á borgarkort.is.

Uppboð – Óskilahross

Þriðjudaginn 27. janúar 2026, kl. 14:00, verður boðin upp rauðtvístjörnótt hryssa, talin um 12 – 14 vetra gömul, hafi réttmætur eigandi þá ekki gefið sig fram. Hryssan er hvorki örmerkt né ber hún annars konar merki. Hryssan hefur verið auglýst á vefsíðu Borgarbyggðar, og þess óskað að eigendur gefi sig fram, án árangurs. Uppboðið mun fara fram að Steinum í …