Borgarbyggð vill vekja athygli íbúa og samstarfsaðila á svikapósti sem nú er í umferð og virðist vera sendur í nafni starfsmanns sveitarfélagsins. Pósturinn ber heitið “Invoice” eða „Reikningur“ og inniheldur hlekk sem viðtakendur eru hvattir til að opna. Um er að ræða svikatilraun (phishing), þar sem markmiðið er að blekkja fólk til að veita aðgang að viðkvæmum upplýsingum eða setja …
Hreinsunarátak í þéttbýli vorið 2026
Hreinsunarátak 2026 Hreinsunarátak í þéttbýli – Vorið 2026. Gámar fyrir gróðurúrgang og timbur verða aðgengilegir vikuna 22.-28. apríl nk. á eftirfarandi stöðum: Bifröst Varmaland Hvanneyri – BÚT-hús Kleppjárnsreykir – gryfjan við Litla-Berg. Ef gámar eru að fyllast þá biðjum við ykkur vinsamlegast hafði samband við Gunnar hjá ÍGF í síma 840-5847 Vakin skal athygli á því að gámar eru ekki …
Skilafrestur framboðslista er 10. apríl 2026
Yfirkjörstjórn mun þá taka á móti framboðslistum á skrifstofu Borgarbyggðar að Digranesgötu 2, 1. hæð milli kl. 10.00 og 12.00. Meðmælendalistum skal skilað í gegnum rafrænt meðmælakerfi á www.island.is og/eða á pappír. Yfirkjörstjórn boðar einnig til fundar mánudaginn 13. apríl n.k. kl. 13.00 á skrifstofu Borgarbyggðar, Digranesgötu 4, 3. hæð þar sem hún úrskurðar um framkomna framboðslista að viðstöddum umboðsmönnum listanna. Þegar yfirkjörstjórn hefur …
Gleðilega páska
Borgarbyggð sendir íbúum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilega páska. Við hvetjum ykkur til að njóta og skapa góðar minningar saman. Ráðhúsið verður lokað yfir páskana en opnar svo aftur þriðjudaginn 7. apríl. Gleðilega hátíð.
Páskaopnun íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi
Páskaopnun íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi Opið – Skírdag kl.09:00-18:00 Lokað – Föstudaginn langa Opið – Laugardaginn 4.apríl kl.09:00-18:00 Lokað – Páskadag Opið – Annan páskadag kl.09:00-18:00 Gleðilega páska
Páskalokun gámastöðvarinnar við Sólbakka.
Páskalokun verður á Gámastöðinni við Sólbakka dagana 2.,3.,5. og 6 apríl Opið verður Laugardaginn 4.apríl kl. 10.00-14.00 ÍSLENSKA GÁMAFÉLAGIÐ BORGARNES Sólbakka 12 310 Borgarnes 5775757 igf@igf.is
Tilkynning frá Grunnskólanum í Borgarnesi vegna árshátíðar.
Kæru foreldrar/forráðamenn. Veðrið hefur aldeilis sett strik í reikninginn með árshátíðardaginn okkar en við erum að reyna að gera okkar besta í stöðunni og legið yfir veðurspám og verið í sambandi við bílstjóra skólabílanna. Við höfum ákveðið að halda tveimur sýningum, og verður sú fyrri kl. 18:30 í kvöld, fimmtudag skv plani. Síðari sýningin verður svo á morgun föstudag kl. …
Vegna veðurs verður lokað í Tómstundarskólanum og leikskólum .
Vegna veðurs verður lokað í Tómstundaskólanum í dag. Einnig verða leikskólarnir Klettaborg og Ugluklettur áfram lokaðir.
Stofnanir lokaðar 26.mars vegna óveðurs.
Á morgun, fimmtudaginn 26. mars verða allar skólastofnanir Borgarbyggðar lokaðar, þar á meðal Grunnskólinn í Borgarnesi, Grunnskóli Borgarfjarðar, Listaskólinn, Hnoðraból, Hraunborg, Andabær, Klettaborg og Ugluklettur. Klettaborg og Ugluklettur munu meta stöðuna um hádegi og opna kl.13 ef veður og færð leyfa. Aldan verður lokuð, en Búsetan verður opin, rétt er að benda á að líklega verði skert þjónusta. Íþróttamiðstöðvarnar verða …
Tilkynning – Notkun bréfpoka undir lífrænan úrgang
Borgarbyggð vill minna íbúa á að lífrænn úrgangur skal ávallt fara í bréfpoka. Bréfpokar henta best til moltugerðar og tryggja að úrgangurinn sé meðhöndlaður á réttan hátt. Athugið: Ekki er tekið við lífrænum úrgangi í maíspokum Ekki er tekið við lífrænum úrgangi í plastpokum eða öðrum pokum en bréfpokum Bréfpoka má nálgast í flestum matvöruverslunum. Við þökkum íbúum fyrir að …








