Sumarnámskeið Í Borgarbyggð 2026

maí 19, 2026
Featured image for “Sumarnámskeið Í Borgarbyggð 2026”

Skráning er hafin á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn í Borgarbyggð. Boðið verður upp á leikja- íþrótta-, leiklistar- og afþreyingarnámskeið með áherslu á útivist, hreyfingu, sköpun og góða samveru yfir sumartímann.

Fjölbreytt og mikið úrval spennandi sumarnámskeiða í boði. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir börn sem voru að ljúka 4. bekk og eldri og fyrir börn sem voru að ljúka 4. -7. bekk. Þá er námskeiðið Leik og Sprell fyrir 6 ára og eldri.
Hér
má nálgast ýmsar upplýsingar og nánari upplýsingar um einstök námskeið ásamt skráningu á þau.

Vegna takmarkaðs pláss er foreldrum bent á að skrá börn tímanlega.
Hægt er að nýta frístundastyrk á öll námskeiðin.


Share: