
Í tilefni af einstöku náttúruundri mun Borgarbyggð bjóða íbúum og gestum að eiga góða stund í Skallagrímsgarði þann 12. ágúst næstkomandi þar sem boðið verður upp á tónlist, popp, candy floss og hoppukastala. Því er tilvalið að taka með sér tjaldstóla og teppi og upplifa þessa merkilegu stund saman.
Athugið að öllum er frjálst að koma sér fyrir hvar sem er til að fá betra útsýni þegar viðburður nær hámarki.
Gleðin hefst kl.16:00 og góðgæti í boði á meðan birgðir endast.
Búast má við mikilli umferð um sveitarfélagið og hvetjum við ökumenn og vegfarendur til að sýna aðgát og þolinmæði.