
Opið er fyrir skráningu barna í frístund fyrir komandi skólaár 2026-2027. Skráning fer fram hér.
Frístund hefst eftir að skóladegi lýkur og er opin til klukkan 16:00/16:15
Frístundarheimili bjóða upp á faglegt tómstundarstarf þar sem börn fá að njóta sín í frjálsum leik og skipulögðu starfi. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og því ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Við skráningu er mikilvægt að allar upplýsingar séu réttar, sérþarfir teknar fram og ef barnið þarf á stuðningi að halda.
Þegar barn fær samþykkta vistun á frístundaheimilinu berst boð um vistun á það netfang sem fylgdi skráningu barns sem foreldrar/forráðamenn þurfa að staðfesta.
Foreldrar eru hvattir til að sækja um fyrir 3.ágúst.