Hreinsunarátak fyrir timbur í dreifbýli

júní 1, 2026
Featured image for “Hreinsunarátak fyrir timbur í dreifbýli”

Líkt á síðastliðin ár stendur Borgarbyggð fyrir hreinsunarátaki í sveitarfélaginu. Í júní, nánar tiltekið vikurnar 5.-11. júní og 16.-22. júní verða gámar fyrir timbur aðgengilegir á eftirfarandi stöðum:

5. – 11. júní
Bæjarsveit
Brautartunga
Bjarnastaðir – á eyrinni
Síðumúli
Lundar

16. – 22. júní
Lyngbrekka
Lindartunga
Eyrin við Bjarnadalsá (Norðurárdalur)
Högnastaðir


Ef gámar eru að fyllast þá biðjum við ykkur vinsamlegast hafði samband við Gunnar hjá ÍGF í síma 840-5847

Vakin er athygli á að söfnunarátak fyrir brotajárn verður með svipuðum sniði í haust og undanfarin ár þar sem brotajárn verður sótt heim að bæ.

 


Share: