
Kvöldin 16. ágúst, 17. ágúst og 18. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð.
Veginum er lokað á meðan framkvæmdir standa yfir en merkt verður hjáleið um Borgarfjarðarbraut.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 umrædd kvöld.
Merkingar og upplýsingaskilti verða sett upp skv. viðhengdri merkingaráætlun, sem að má finna hér, Lokunarplan
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng, gera má ráð fyrir að starfsfólk og tæki verða við vinnu mjög nálægt akstursbrautum