Í kvöld þriðjudag 21. apríl mun hópur eldri borgara úr Reykjavík flytja bókmenntadagskrá á Sögulofti Landnámsseturs. Dagskáin er öll byggð á verkum eftir borgfirskar konur sem birtust í bókinni Og þá rigndi blómum… Flytjendur hafa æft framsögn undir leiðsögn leikkvennanna Guðnýjar Helgadóttur og Soffíu Jakobsdóttur. Dagkráin hefst kl 20.00 Aðganseyrir er kr. 500. Fjölmennum og heiðrum þessa góðu gesti. . …
Skeifudagur Grana
Skeifudagur Grana verður haldinn hátíðlegur í glæsilegri hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands að Mið-Fossum á sumardaginn fyrsta. Grani er hestamannafélag nemenda við Landbúnaðarháskóla Íslands. Dagskráin hefst kl. 12:30. Þennan dag sýna nemendur í hrossarækt við LbhÍ afrakstur vetrarstarfsins í reiðmennsku og frumtamningum. Keppt verður um Gunnarsbikarinn, sem gefinn er af Bændasamtökum Íslands í minningu Gunnars Bjarnasonar, fyrrum hrossaræktarráðunauts og kennara á Hvanneyri. …
Stuttverkahátíðin Margt smátt
Fréttatilkynning frá BÍL Nú er komið að 5. stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, Margt smátt, í Borgarleikhúsinu. Hátíðin verður haldin laugardaginn 23. maí næstkomandi og verður hún með sama sniði og síðast, í október 2007, en mál manna var að sú hátíð hefði verið sérstaklega vel heppnuð. Borgfirsk leikfélög eru hvött til að taka þátt í hátíðinni og mæta í höfuðborgina …
Fundur um framtíð skólahalds
Fræðslunefnd Borgarbyggðar stendur fyrir umræðufundi með foreldrum barna í Grunnskóla Borgarfjarðar þriðjudaginn 21. apríl kl. 20.30 í fundarsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. (3. hæð) Umræðuefnið er framtíð skólahalds. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta.
Vantar upplýsingar um myndir
Í myndasafni Héraðsskjalasafns Borgfirðinga er mikið af myndum með óþekktu myndefni. Þessa dagana er uppi sýningarskápur með nokkrum slíkum myndum, sem tilheyra ómerktu myndaalbúmi í safninu. Reglubundið er leitað eftir aðstoð fólks við að greina ljósmyndir og hefur það reynst afar gagnlegt. Síðla sumars verða þau tímamót hjá héraðsskjalasafninu að opnaður verður ljósmyndavefur. Með þeim hætti getur fólk skoðað myndirnar …
Vortilboð í þolfimisal
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi býður upp á vortilboð í þolfimisalnum fyrir þá sem vilja koma sér í form fyrir sumarið og smella sér á kröftug sérnámskeið í þolfimisalnum á sérstöku tilboðsverði. Námskeiðin hefjast strax í næstu viku og er skráning þegar hafin í afgreiðslu. Námskeiðin eru í LesMills æfingakerfinu BodyPump, BodyCombat og BodyJam. Sjá nánar hér á auglýsingu um tilboðin. …
Umsóknarfrestur fyrir styrki til íþrótta- og æskulýðsmála í Borgarbyggð
Hér með er ítrekað að frestur til skila á umsóknum um styrki til íþrótta- og æskulýðsmála í Borgarbyggð rennur út 20. apríl n.k. Sjá hér reglur og áður útkomna auglýsingu. ij
Ekki missa af Töðugjaldaballinu!
Ungmennafélag Reykdæla hefur undanfarið sýnt söng- og gleðileikinn „Töðugjaldaballið -sendu mér sms-“ eftir Bjartmar Hannesson og Hafstein Þórisson við frábærar undirtektir. Bjartmar samdi texta og talað mál en tónlistin er öll eftir Hafstein. Nú eru einungis tvær sýningar eftir, föstudaginn 17. apríl og laugardaginn 18. apríl. Sýningar fara fram í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Miðapantanir í símum 691 1182 og …
Heimsókn frá Svíþjóð í Grunnskóla Borgarness
Unglingar í Óðali Sunnudaginn 19. apríl mun hópur nemenda og kennara frá Tullbroskolan í Falkenberg í Svíþjóð koma í heimsókn í Grunnskóla Borgarness. Falkenberg er vinabær okkar í Svíþjóð. Alls koma 37 manns til landsins og eru svíarnir að endurgjalda heimsókn frá því í haust. Þau verða hér á landi fram til föstudagsins 24. apríl. Dagskrá er hægt að nálgast …
Sýningu Páls að ljúka
Páll Guðmundsson á Húsafelli varð fimmtugur þann 27. mars síðastliðinn og stendur af því tilefni yfir málverkasýning í Reykjavík Art Gallery. Sýningin heitir Vinir mínir og eru þar samankomnar ýmsar persónur úr lífi Páls. Að öðrum ólöstuðum er Páll einn mesti listamaður héraðsins. Sýning Páls er afskaplega skemmtileg og Borgfirðingar eru hvattir til að láta hana ekki framhjá …