Samvera, sveppir og fleira skemmtilegt í Einkunnum

Miðvikudaginn 20. ágúst kl 18.00 ætla félagar í Skógræktarfélagi Borgarfjarðar að hittast í Einkunum. Ætlunin erað kíkja eftir sveppum, kveikja eld, laga ketilkaffi og prófa útieldun, spjalla og fræðast hvert af öðru. Skógræktarfélagar hvetja alla, hvort sem þeir hafa áhuga á útivist, skógrækt, sveppatínslu og/eða náttúruskoðun, til að mæta og saman skemmtilega stund.  

Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð – Stóra Brákarey

Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Borgarbyggðar 14. ágúst 2014. Breytingin felst í að landnotkun í Stóru-Brákarey verði breytt samkvæmt uppdráttum og greinargerð dagsettri 8. ágúst 2014. Skipulagssvæðið tekur til Stóru Brákareyar.Tillagan mun liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, á skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarbyggð, frá …

Íbúafundur vegna breytinga á umferðarskipulagi

Boðað er til almenns íbúafundar vegna fyrirhugaðra breytinga á umferðarskipulagi á skólaholtinu í Borgarnesi. Í breytingunum felst m.a. að gera einstefnu um Bröttugötu og Helgugötu, breikka gangstéttar, bæta aðgengi fyrir gangandi vegfarendur og gera svokölluð „sleppistæði“ við lóð grunnskólans í Borgarnesi. Nýja umferðarskipulagið er í samræmi við tillögur vinnuhóps sem starfaði á vegum sveitarfélagsins. Á fundinum mun Jökull Helgason forstöðumaður …

Nýr íþrótta- og tómstundaskóli

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að stofna nýjan Íþrótta- og tómstundaskóla í samvinnu við Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB). Gert er ráð fyrir að starfsemin hefjist um næstu áramót. Undirbúningur er í fullum gangi og stefnt er að undirritun samnings á milli Borgarbyggðar og UMSB í næsta mánuði. Í framhaldi af því verður ráðinn tómstundafulltrúi til UMSB sem mun hafa umsjón með verkefninu …

Minnisvarði um Erlend Gunnarsson á Sturlureykjum

  Sunnudaginn 17. ágúst næstkomandi verður afhjúpaður minnisvarði um Erlend Gunnarsson bónda og þúsundþjalasmið á Sturlureykjum. Erlendur hóf fyrir rúmlega 100 árum að nýta jarðvarma til hagsbóta fyrir heimili sitt og samborgara sína. Athöfnin fer fram á Merkjaholti milli Grófar og Sturlureykja í Reykholtsdal og hefst kl. 15.00. Það eru afkomendur Erlendar sem bjóða til athafnarinnar og allir eru velkomnir. …

Laust starf hjá Umhverfis- og skipulagssviði Borgarbyggðar

Starfsmaður í áhaldahús Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf í áhaldahúsi sem sveitarfélagið hyggst koma á fót. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf. Leitað er að laghentum og duglegum einstaklingi með góða samskiptahæfileika. Í starfinu felst að sjá um undirbúning, skipulagningu og vinnu við ýmsar verklegar framkvæmdir og umhirðuverkefni á vegum áhaldahúss, s.s. við gatnakerfi, opin svæði og …

Félagsleg heimaþjónusta – starfsmaður óskast

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu / heimilishjálp á Hvanneyri og nágrenni. Um er að ræða 25 – 30% starf. Launakjör skv. kjarasamningum. Akstur er greiddur. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst. Nánari upplýsingar veita: Elín Valgarðsdóttir verkstjóri: felagsstarf@borgarbyggd.is, s: 8401525 eða Hjördís Hjartardóttir félagsmálastjóri: hjordis@borgarbyggd.is . Sími 4337100.    

Laust starf við Skólaselið á Hvanneyri

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir starfsmanni við Skólaselið á Hvanneyri. Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna með börnum og ungmennum. Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262- 433-7302, einnig má senda fyrirspurn á netfangið inga@gbf.is  

Laus staða við Grunnskólann í Borgarnesi

Mikil þróun á sér stað innan Grunnskólans í Borgarnesi og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda. Leitað er að umsjónarkennara á miðstig sem er tilbúinn að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi með nemendum, samstarfsfólki og foreldrum skólaárið 2014-2015.   Menntun, reynsla og hæfni: Kennsluréttindi í grunnskóla …

Köttur í óskilum.

Ómerkt bröndótt kettlingafull læða er í vörslu hjá gæludýraeftirliti Borgarbyggðar. Hún var handsömuð við Berugötuna í Borgarnesi.   Þeir sem telja sig þekkja til kattarins á myndinni eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða í verktaka á vegum Borgarbyggðar í síma 892-5044.