Yfirlit reikninga

Vakin er athygli á að nálgast má yfirlit yfir alla reikninga sem gefnir eru út af Borgarbyggð inni á island.is. En þar má meðal annars nálgast sundurliðun reikninga vegna UMSB, tónlistarskóla, mötuneytis, fasteignagjalda og margt fleira. Sjá nánar: https://innskraning.island.is/?id=borgarbyggd.is    

Vortónleikar Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Mikið fjölmenni var á tónleikum skólans í Safnahúsi á sumardaginn fyrstaNú eru vorverkin í Tónlistarskóla Borgarfjarðar í fullum gangi og hafa próf staðið yfir í skólanum síðustu dagana. Vikuna 11.-14. maí verða vortónleikar skólans og á tónleikunum munu nemendur einnig fá afhent prófskírteinin/viðurkenningarskjöl.   Vortónleikarnir (einkuknnaafhending) verða : Mánudag 11. maí kl. 16:30 Forskólanemendur með samverustund í stofu 7 í …

Sumaropnun Safnahússins

Þann 1. maí tók gildi sumaropnunartími sýninga í Safnahúsi Borgarfjarðar. Sýningar verða opnar alla daga klukkan 13:00-17:00, helgidaga jafnt sem virka daga. Afgreiðslutími bókasafns er óbreyttur, klukkan 13:00-18:00 virka daga svo einnig er hægt að sjá sýninguna Gleym þeim ei til kl. 18:00 virka daga, en hún er á sömu hæð og bókasafnið. Sjá nánar á vef Safnahússins: www.safnahus.is.   …

Ekki boðið upp á matjurtagarða í ár

Undanfarin ár hefur Borgarbyggð boðið matjurtagarða til leigu í Borgarnesi. Nú hefur verið ákveðið að sveitarfélagið hætti að leigja matjurtagarða og því verður fólk að snúa sér annað með ræktun sína í sumar.  

Dagforeldra vantar til starfa

Dagforeldra vantar til starfa í Borgarbyggð. Dagforeldrar starfa samkvæmt reglugerð nr. 907/2005, um daggæslu barna í heimahúsum. Vakin er athygli á því að starfsemi dagforeldra er leyfisskyld. Fræðslunefnd Borgarbyggðar veitir leyfi. Sótt er um leyfi hjá sviðsstjóra fjölskyldu- og fjármálasviðs, Aldísi Örnu Trygggvadóttur (aldisarna@borgarbyggd.is). Nánari upplýsingar um starfsemi dagforeldra má finna hér.      

Safnahús og Tónlistarskólinn – árangursríkt samstarf

Um 300 manns mættu á sýningaropnun og tónleika í Safnahúsinu í Borgarnesi í gær, á hátíð í tilefni af 100 ára kosningaafmæli kvenna. Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar flutti ávarp og nemendur Tónlistarskóla Borgarfjarðar fluttu verk sem þeir hafa samið í vetur undir handleiðslu kennara sinna. Efniviður verkanna voru textar eftir fjórar konur frá Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum. Þetta er í þriðja …

Skýrsla sveitarstjóra í apríl

Kolfinna Jóhannesdóttir flutti skýrslu sveitarstjóra á 126. fundi sveitarstjórnar síðastliðinn þriðjudag.   Í máli sínu fór hún yfir nokkur þau verkefni sem unnið hefur verið að að undanförnu. Meðal þess sem fram kom í máli sveitarstjóra og samþykkt var síðar á fundinum er að sveitarfélagið mun fá til liðs við sig ráðgjafa á sviði fjármála og fræðslumála í þeirri hagræðingarvinnu …