Af vef Safnahúss Borgarfjarðar safnahus.is Það gerist stundum á sýningunni Börn í 100 ár í Safnahúsi að gesti safnsins er að finna á ljósmyndunum sem þar eru. Þetta gerðist m.a. í gær þegar Ester Hurlen sótti sýninguna heim og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Ljósmyndin sem hún er á er úr safni Bjarna Árnasonar frá Brennistöðum í Flókadal …
Frá Ráðhúsi Borgarbyggðar
Á morgun, föstudaginn 6. október verður skrifstofum Borgarbyggðar lokað kl. 14 í stað 15 líkt og verið hefur.
Næstu skref í heilsueflingu Borgarbyggðar
Út er komin áfangaskýrsla um heilsueflingu í Borgarbyggð en gengið var frá samningi við Embætti landlæknis sl. vor um þátttöku Borgarbyggðar í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Heilsueflandi samfélag er samfélag sem setur heilsu og heilsueflingu í forgrunn í allri stefnumótun og þjónustu og býr þar með til aðgengi og umgjörð sem gerir öllum íbúum kleift og auðvelt að taka heilsusamlegar ákvarðanir. …
Frá Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi – viðhald í þreksal
Vegna viðhalds verður þreksalurinn lokaður frá kl.14 föstudaginn 29.sept og opnar aftur sunnudaginn 1. okt kl 9:00
Náttúran – lýðheilsuganga FI og UMSB
Síðasta lýðheilsuganga Ferðafélags Íslands og UMSB var farin undir yfirskriftinni Náttúran miðvikudaginn 27. september kl.17:00. Gengið var á Hafnarfjallið, upp að “steini”. Gengið var eftir gönguleið uppí hlíðar fjallsins. Var þátttaka góð en tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. Allar upplýsingar …
Starfsemi Safnahúss Borgarfjarðar á næstunni
Safnahúsið verður að venju með öflugt menningarstarf í vetur og hefst dagskráin í lok október með fyrirlestrum á sviði arkitektúrs og sagnfræði. Fimmtudaginn 26. október n.k. flytur Sigursteinn Sigurðsson arkitekt erindi sem hann nefnir „Mannvirkin og sagan: Húsahönnun í héraði.“ Nokkrum vikum síðar eða 16. nóvember, verður fyrirlestur Heiðars Lind Hanssonar sagnfræðings á dagskrá með efni úr sögu Borgarness. Sýningin Tíminn …
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða – umsóknir um styrki
Þann 25. september var opnað fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2018. Umsóknarfrestur er til 25. október næstkomandi. Vakin er sérstök athygli á að í kjölfar lagabreytinga er nú í fyrsta sinn auglýst í samræmi við nýjar reglur sem um sjóðinn gilda. Sjá nánar á heimasíðu Ferðamálastofu https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/auglyst-eftir-umsoknum-um-styrki-fra-framkvaemdasjodi-ferdamannastada
Lokun Borgarbrautar 2.-6. okt.
Vegna framkvæmda við lagnir og þverun Borgarbrautar verður lokað fyrir umferð um Borgarbraut á móts við Borgarbraut 57-59 frá og með mánudeginum 2. október til og með föstudeginum 6. október n.k. Verktaki í verkinu er Borgarverk ehf en verkið er unnið fyrir Veitur ohf og Rarik ohf. Hjáleið verður um Kveldúlfsgötu/Kjartansgötu á meðan á framkvæmdum stendur. Beðist er velvirðingar á …
Slökkvitækjaþjónusta í Borgarnesi lokuð tímabundið
Slökkvitækjaþjónusta slökkviliðs Borgarbyggðar verður lokuð um óákveðin tíma vegna veikinda starfsmanns. Viðskiptavinum er bent á slökkvitækjaþjónustu Björns H. Sveinssonar í Varmalandi við Reykholt Sími: 691 9936. Eða sambærilega þjónustu á Akranesi. Auglýst verður sérstaklega þegar þjónustan opnar að nýju. Slökkviliðsstjóri.
Kristín Lilja ráðin í starf innheimtufulltrúa
Starf innheimtufulltrúa hjá Borgarbyggð var auglýst laust til umsóknar á dögunum. Alls bárust 11 umsóknir um starfið. Eftir úrvinnslu umsókna var ákveðið að ráða Kristínu Lilju Lárusdóttur í starfið. Kristín Lilja, er með MLM gráðu í forystu og stjórnun, BS próf í viðskiptafræði og próf í rekstrarfræði. Kristín hefur mikla reynslu af innheimtu og fjármálaumsýslu hjá Íslandsbanka og einnig gegndi …









