Þann 25. september var opnað fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2018. Umsóknarfrestur er til 25. október næstkomandi. Vakin er sérstök athygli á að í kjölfar lagabreytinga er nú í fyrsta sinn auglýst í samræmi við nýjar reglur sem um sjóðinn gilda. Sjá nánar á heimasíðu Ferðamálastofu https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/auglyst-eftir-umsoknum-um-styrki-fra-framkvaemdasjodi-ferdamannastada
Lokun Borgarbrautar 2.-6. okt.
Vegna framkvæmda við lagnir og þverun Borgarbrautar verður lokað fyrir umferð um Borgarbraut á móts við Borgarbraut 57-59 frá og með mánudeginum 2. október til og með föstudeginum 6. október n.k. Verktaki í verkinu er Borgarverk ehf en verkið er unnið fyrir Veitur ohf og Rarik ohf. Hjáleið verður um Kveldúlfsgötu/Kjartansgötu á meðan á framkvæmdum stendur. Beðist er velvirðingar á …
Slökkvitækjaþjónusta í Borgarnesi lokuð tímabundið
Slökkvitækjaþjónusta slökkviliðs Borgarbyggðar verður lokuð um óákveðin tíma vegna veikinda starfsmanns. Viðskiptavinum er bent á slökkvitækjaþjónustu Björns H. Sveinssonar í Varmalandi við Reykholt Sími: 691 9936. Eða sambærilega þjónustu á Akranesi. Auglýst verður sérstaklega þegar þjónustan opnar að nýju. Slökkviliðsstjóri.
Kristín Lilja ráðin í starf innheimtufulltrúa
Starf innheimtufulltrúa hjá Borgarbyggð var auglýst laust til umsóknar á dögunum. Alls bárust 11 umsóknir um starfið. Eftir úrvinnslu umsókna var ákveðið að ráða Kristínu Lilju Lárusdóttur í starfið. Kristín Lilja, er með MLM gráðu í forystu og stjórnun, BS próf í viðskiptafræði og próf í rekstrarfræði. Kristín hefur mikla reynslu af innheimtu og fjármálaumsýslu hjá Íslandsbanka og einnig gegndi …
Sex mánaða uppgjör fyrir Borgarbyggð
Á fundi byggðarráðs þann 21. september var lagt fram sex mánaða uppgjör fyrir rekstur, sjóðstreymi og efnahag Borgarbyggðar. Haraldur Örn Reynisson, endurskoðandi frá KPMG, mætti til fundarins og skýrði út uppgjörið. Almennt má segja að rekstur Borgarbyggðar hafi verið heldur betri en áætlað var í fjárhagsáætlun með þegar samþykktum viðaukum. Tekjur samstæðunnar (A+B) eru 1.763 m.kr. eða um 17 m.kr. …
Félagsstarf eldri borgara
Félagsstarf eldri borgara fer fram á 1. hæð Borgarbraut 65a í Borgarnesi. Þar er opið kl. 12.00 – 16.00 alla virka daga. Á veturna er skipulagt starf með leiðbeinendum, en á sumrin er opið fyrir spilamennsku og spjall. Elín Valgarðsdóttir skipuleggur starf eldri borgara í Borgarnesi í samráði við notendur og sér um hádegismat í félagsstarfi, innlit og ýmsa þjónustu …
Blær er mættur í Borgarbyggð.
Forvarnarefnið Vinátta með bangsann Blæ í fararbroddi hefur nú verið innleitt í alla leikskóla í Borgarbyggð, Ugluklett, Klettaborg, Andabæ, Hnoðraból og Hraunborg. Vináttuverkefnið er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla. Barnaheill á Íslandi hefur þýtt, staðfært, framleitt og gefið efnið út í samstarfi við Red barnet – Save the Children og Mary Fonden í Danmörku. Vinátta byggir á nýjustu rannsóknum á …
Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands og UMSB
Minnt er á sögugöngu um Hvanneyri undir leiðsögn Bjarna Guðmundssonar miðvikudaginn 20. september. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 18:00 og gengið um svæðið með viðkomu á merkilegum stöðum. Farið verður vel yfir sögu staðarins. Íbúar Borgarbyggðar hvattir til að mæta og taka með sér vin.
Kjörskrá v. kosninga til Alþingis
Úr pósti Þjóðskrár til sveitarfélaga. Líkt og flestum er kunnugt um hefur verið ákveðið að ganga til Alþingiskosninga þann 28. október nk. Samkvæmt a lið 1. mgr. 23 gr. laga um kosningar til Alþingis er viðmiðunardagur kjörskrárstofns 5 vikum fyrir kjördag sem þýðir að viðmiðunardagur að þessu sinni er 23. september sem er næstkomandi laugardagur. Mikilvægt er því að allar …
Úrgangsmál í dreifbýli
Hreinsunarátak að hausti verður dagana 2.- 16. október. Gámar fyrir timbur- og málmúrgang verða aðgengilegir á eftirtöldum stöðum: Bjarnastaðir – á eyrinni (ath. að hliðið á að vera lokað) Brautartunga Brekka í Norðurárdal Bæjarsveit Grímsstaðir Hvanneyri Högnastaðir Lindartunga Lyngbrekka Síðumúli Mikilvægt er að rétt sé flokkað í gámana og að úrgangi sé vel raðað svo plássið nýtist sem best. …









