Hreyfing í boði fyrir almenning í Borgarbyggð

Fjölbreytt hreyfing er í boði fyrir almenning í Borgarbyggð en rannsóknir staðfesta að regluleg hreyfing gegnir lykilhlutverki fyrir heilsu og vellíðan alla ævi. Hreyfing minnkar líkurnar á flestum langvinnum sjúkdómum og eykur líkamshreysti, vellíðan og lífsgæði almennt. Auk beinna áhrifa á heilsu og líðan geta lifnaðarhættir, sem fela í sér daglega hreyfingu, skapað tækifæri til að mynda og styrkja félagsleg …

Söngvar úr Oliver og Fiðlaranum á þakinu

Nú er starf vorannar í Tónlistarskóla Borgarfjarðar komið í fullan gang. Starfið verður hefðbundið og að venju eitt og annað skemmtilegt á dagskránni. Söngleikjadeildin ætlar að æfa upp söngva úr söngleikjunum Oliver og Fiðlaranum á þakinu og munu þátttakendur vera bæði börn og fullorðnir.  Tónlistin í þessum söngleikjum er sérlega skemmtileg og höfðar til flestra. Hægt er að bæta við …

Fjölbreytt verkefni á skipulagsdegi skóla

Í skólum Borgarbyggðar  voru unnin fjölbreytt verkefni á skipulagdegi þann 16. janúar sl. Ebba Guðný Guðmundsdóttir hélt námskeið fyrir matráða leikskóla og grunnskóla og aðstoðarmenn þeirra og  fjallaði um ofnæmi og óþol hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri. Eldaðir voru m.a. grænmetisréttir og rætt um næringarinnihald matar. Persónuverndarfulltrúi Borgarbyggðar fræddi starfsfólk Grunnskóla Borgarfjarðar um vinnslu persónuupplýsinga og geymslu í ljósi …

Fallegt í Borgarnesi

„Ef ég hefði átt að lýsa Borgarnesi í byrjun 20. aldarinnar, hefði ég sagt, að það væri versti staður á Íslandi. Þar væri ljótt, sandur og berir klettar, alltaf vont veður, stormur og rigning, og þar lægju skólapiltar og kaupafólk í einni bendu uppi á einhverju stóru pakkhúslofti. En eftir að frú Helga fór að skjóta skjólshúsi yfir mig, uppgötvaði …

Verkefni á sviði byggingarfulltrúa

    Dæmi um stór verkefni í byggingu eða langt komin:    Borgarbraut 57-59 (íbúðarblokk, hótel og verslanir/skrifstofur) Hótelbygging í gamla húsmæðraskólanum á Varmalandi Stækkun á Hótel Reykholti • Stækkun á Hótel Hamri Stækkun og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi  Nýtt verslunarhúsnæði við Digranesgötu 4 Stækkun …

Góð þátttaka á fyrirlestri um markmiðasetningu

Góð þátttaka var á fyrirlestri Elísabetar Margeirsdóttur um markmiðasetningu. Elísabet er ofurhlaupari og næringarfræðingur að mennt. Fjallaði hún um mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið í næringu og hreyfingu á nýju ári. Einnig að finna það sem maður hefur áhuga á og brennur fyrir, en það þurfi hver og einn að finna hjá sér. Elísabet hefur stundað hlaup í …

Uppbyggingarsjóður Vesturlands – kynning

Ráðgjafar á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verða með kynningu á sjóðnum á næstu dögum þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um gerð umsókna, styrkhæfni verkefna o.fl.  Viðvera verður á eftirtöldum stöðum: Stykkishólmur    mánudaginn 14 janúar kl.10.00-12.00 í ráðhúsinu í Stykkishólmi. Grundarfjörður mánudaginn 14 janúar kl.13.00-15.00 í ráðhúsinu í Grundarfirði. Ólafsvík               mánudaginn 14 janúar kl.16.00-18.00 í Átthagastofu …

Markmið sett á nýju ári

Sem lið í heilsueflandi samfélagi hvetur Borgarbyggð íbúa til að hefja nýtt ár með fyrirheitum um heilsusamlegt líferni. Fimmtudaginn 10. janúar 2019 kl. 20:00 mun Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari og næringarfræðingur flytja fyrirlestur í Hjálmakletti um að setja sér raunhæf markmið í næringu og hreyfingu á nýju ári. Elísabet hefur stundað hlaup í rúman áratug og lokið fjölmörgum maraþonum og lengri …

Laus lóð – Berugata 1-3

Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar nýstofnaða lóð við Berugötu í Borgarnesi, Berugötu 1-3, sem samþykkt var að stofna á fundi sveitarstjórnar þann 13. des. s.l. Um úthlutun hennar fer skv. reglum Borgarbyggðar um úthlutun lóða. Reglurnar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is ásamt uppdrætti af lóðinni (undir lausar lóðir) . Umsóknarfrestur er til 28. janúar 2019 og verður henni …