Föstudagurinn dimmi

Fyrir nokkru tóku tveir frumkvöðlar í Borgarnesi sig til og efndu til uppákomu sem nefndist Föstudagurinn dimmi. Þetta voru þær Eva Hlín Alfreðsdóttir og Heiður Hörn Hjartardóttir. Á þessum degi hvetja þær til umhugsunar og upplifunar í ljósleysi skammdegisins, þar sem hugsað er til eldri tíma þegar fólk bjó ekki við rafmagn. Safnahús tekur þátt í Dimma föstudeginum í dag …

Fjölbreytt verkefni á skipulagsdegi skóla

Í skólum Borgarbyggðar  voru unnin fjölbreytt verkefni á skipulagdegi þann 16. janúar sl. Ebba Guðný Guðmundsdóttir hélt námskeið fyrir matráða leikskóla og grunnskóla og aðstoðarmenn þeirra og  fjallaði um ofnæmi og óþol hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri. Eldaðir voru m.a. grænmetisréttir og rætt um næringarinnihald matar. Persónuverndarfulltrúi Borgarbyggðar fræddi starfsfólk Grunnskóla Borgarfjarðar um vinnslu persónuupplýsinga og geymslu í ljósi …

Fallegt í Borgarnesi

„Ef ég hefði átt að lýsa Borgarnesi í byrjun 20. aldarinnar, hefði ég sagt, að það væri versti staður á Íslandi. Þar væri ljótt, sandur og berir klettar, alltaf vont veður, stormur og rigning, og þar lægju skólapiltar og kaupafólk í einni bendu uppi á einhverju stóru pakkhúslofti. En eftir að frú Helga fór að skjóta skjólshúsi yfir mig, uppgötvaði …

Verkefni á sviði byggingarfulltrúa

    Dæmi um stór verkefni í byggingu eða langt komin:    Borgarbraut 57-59 (íbúðarblokk, hótel og verslanir/skrifstofur) Hótelbygging í gamla húsmæðraskólanum á Varmalandi Stækkun á Hótel Reykholti • Stækkun á Hótel Hamri Stækkun og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi  Nýtt verslunarhúsnæði við Digranesgötu 4 Stækkun …

Góð þátttaka á fyrirlestri um markmiðasetningu

Góð þátttaka var á fyrirlestri Elísabetar Margeirsdóttur um markmiðasetningu. Elísabet er ofurhlaupari og næringarfræðingur að mennt. Fjallaði hún um mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið í næringu og hreyfingu á nýju ári. Einnig að finna það sem maður hefur áhuga á og brennur fyrir, en það þurfi hver og einn að finna hjá sér. Elísabet hefur stundað hlaup í …

Uppbyggingarsjóður Vesturlands – kynning

Ráðgjafar á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verða með kynningu á sjóðnum á næstu dögum þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um gerð umsókna, styrkhæfni verkefna o.fl.  Viðvera verður á eftirtöldum stöðum: Stykkishólmur    mánudaginn 14 janúar kl.10.00-12.00 í ráðhúsinu í Stykkishólmi. Grundarfjörður mánudaginn 14 janúar kl.13.00-15.00 í ráðhúsinu í Grundarfirði. Ólafsvík               mánudaginn 14 janúar kl.16.00-18.00 í Átthagastofu …

Markmið sett á nýju ári

Sem lið í heilsueflandi samfélagi hvetur Borgarbyggð íbúa til að hefja nýtt ár með fyrirheitum um heilsusamlegt líferni. Fimmtudaginn 10. janúar 2019 kl. 20:00 mun Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari og næringarfræðingur flytja fyrirlestur í Hjálmakletti um að setja sér raunhæf markmið í næringu og hreyfingu á nýju ári. Elísabet hefur stundað hlaup í rúman áratug og lokið fjölmörgum maraþonum og lengri …

Laus lóð – Berugata 1-3

Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar nýstofnaða lóð við Berugötu í Borgarnesi, Berugötu 1-3, sem samþykkt var að stofna á fundi sveitarstjórnar þann 13. des. s.l. Um úthlutun hennar fer skv. reglum Borgarbyggðar um úthlutun lóða. Reglurnar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is ásamt uppdrætti af lóðinni (undir lausar lóðir) . Umsóknarfrestur er til 28. janúar 2019 og verður henni …

Sagt frá Guðrúnu frá Lundi

Marín Guðrún Hrafnsdóttir flytur erindi um Guðrúnu frá Lundi í Safnahúsinu fimmtudaginn 10. janúar n.k. kl. 19.30. Marín Guðrún er bókmenntafræðingur og langömmubarn skáldkonunnar. Hún hefur víða haldið fyrirlestra og námskeið þar sem hún segir sögu Guðrúnar sem er um margt ævintýraleg.  Þess má geta að Marín Guðrún er einnig höfundur farandsýningarinnar Kona á skjön, sem er um ævi og …